Í samræmi við umhverfisstefnu þjóðkirkjunnar samþykkir kirkjuþing eftirfarandi atriði í aðgerðaráætlun umhverfismála 2018-2020:
- Handbók um umhverfisstarf í söfnuðum og kirkjustarfi verði endurnýjuð og birt á vef kirkjunnar, á efnisveitu kirkjunnar.
- Kirkjan stundi siðræn viðskipti með áherslu á hag frumframleiðenda og umhverfisvottaðar vörur.
- Staðið verði fyrir námskeiðum um umhverfismál t.d. vistmenningu, innkaup á vörum og sorpflokkun.
- Efnt verði til samstarfsverkefna með öðrum hreyfingum, stofnunum og einstaklingum sem vinna að umhverfismálum og sjálfbærni.
- Tímabil sköpunarverksins, sem efnt var til í fyrsta sinn sl. haust, verði fest í sessi í september ár hvert, með viðburðum, helgihaldi og fræðslu um umhverfismál, t.d. umhverfisdögum í kirkjum og uppskerumessum.
- Sérstök áhersla verði lögð á umhverfisfræðslu í barna-, og æskulýðsstarfi kirkjunnar, svo og í fermingarstarfi.
- Í samræmi við ályktun frá kirkjuþingi unga fólksins (3. mál 2017) um að einnota plastmálum verði útrýmt úr safnaðarstarfi kirkjunnar, verður notkun einnota plastmála hætt þegar í stað. Notkun annarra einnota áhalda, borðbúnaðar og umbúða í safnaðarstarfi kirkjunnar verði hætt fyrir árslok 2018.
|
- Efld verði að nýju átaksverkefni og starf í líkingu við Breytendur á vegum Hjálparstarfs kirkjunnar.
- Gert verði sérstakt átak í endurheimt votlendis á kirkju- og prestssetursjörðum með sambærilegum hætti og gert hefur verið í Skálholti. Haldið verði áfram skógrækt og landgræðslu á kirknajörðum með endurnýjuðum krafti.
- Undirbúinn verði farvegur fyrir stærri söfnuði til þess að fá vottun á sjálfbærri starfsemi sinni hjá Umhverfisstofnun.
|