Afhverju er kirkjan að fjalla um umhverfismál?Loftslagsbreytingar hafa áhrif á hversdaginn okkar. Manneskjur, dýr og plöntur eru í neyð því forsendur lífs þeirra og tilveru eru að breytast. Vísindamenn hafa slegið því föstu að lífshættir mannkyns séu rót vandans og ítrekað nauðsyn þess að við breytum hegðun okkar. Sem kirkja höfum við köllun til að standa vörð um sköpunarverkið og fylgja Jesú Kristi, en hvað þýðir það fyrir okkur í dag? Hvernig getum við hugsað hnattrænt en gripið til aðgerða í nærsamfélaginu? |
Að verða grænn söfnuður„Grænn söfnuður“ er verkfæri fyrir kirkjur landsins til að mæta þessum áskorunum. Safnaðarfólk getur sameinast um fjölbreytt og aðgengileg verkefni sem tengjast öllu frá guðsþjónustunni og fermingarstarfinu, til kirkjukaffisins og þrifa á kirkjurýminu. Verkefnin eru hugsuð til stuðnings og innblásturs en ekki sem tékklisti sem fylla eigi út og líta svo á að markmiðinu sé náð. Það að gerast grænn söfnuður þarf ekki að krefjast mikils tíma eða kosta mikið, hins vegar gæti það skapað samfélag þvert á kynslóðir og búið til tengingar milli fólks sem tekur þátt í ólíkum hlutum í kirkjunni.
| Á grænni leiðKirkjur sem eru farnað að vinna að 8 atriðum úr verkefnaheftinu hér að neðan fá viðurkenningu og vottun um að þær séu á grænni leið. Grænn söfnuðurKirkjur sem eru búnar að ná 25 atriðum úr verkefnaheftinu hér að neðan fá viðurkenningu og vottun um að þær séu sannarlega grænn söfnuður. |
VerkefnabæklingurinnGræni söfnuðurinn okkar er verkefnabæklingur og leiðarvísir fyrir söfnuði sem vilja gerast grænir. Hægt er að nálgast hann hjá Fræðslusviði þjóðkirkjunnar á Biskupsstofu í prentaðri útgáfu. Bæklingurinn er einnig aðgengilegur á netinu. |