Höfuðdagur 29.ágúst.
Höfuðdagur 29.ágúst.
Litur hvítur eða rauður.
Vers
Dýr er í augum Drottins dauði dýrkenda hans.
Ég færi þér þakkarfórn, ákalla nafn Drottins. Sálm. 116.15.17.
Bæn dagsins / kollektan
Jesús Kristur, frelsari heimsins. Jóhannes játaði nafn Drottins frammi fyrir hinum voldugu og
vék aldrei frá sannleikanum. Við biðjum þig: Veit okkur styrk af fordæmi hans og fyrirmynd
til að játa þig allsstaðar og ævinlega og óttast ekki hatur mannanna, þú sem með föðurnum
og heilögum anda lifir og ríkir frá eilífð til eilífðar.
Lexía. Jer. 1. 11-19
Orð Drottins kom til mín:
„Hvað sérðu, Jeremía?“
Ég svaraði: „Ég sé möndluviðargrein.“
Þá sagði Drottinn við mig:
„Þú hefur séð rétt því að ég vaki yfir því að orði mínu verði framfylgt.“ [
Orð Drottins kom til mín öðru sinni:
„Hvað sérðu?“
Ég svaraði:
„Ég sé rjúkandi pott sem hallast úr norðri.“
Þá sagði Drottinn við mig:
Úr norðri verður böli hellt yfir alla íbúa landsins.
Því sjá:
Ég kalla á öll konungsríkin fyrir norðan,
segir Drottinn.
Þau koma og reisa hvert sitt hásæti
utan við borgarhlið Jerúsalem,
gegnt borgarmúrum hennar allt umhverfis,
og ógna öllum borgum í Júda.
Þá mun ég kveða upp dóm yfir þeim
vegna allrar illsku þeirra
þegar þeir yfirgáfu mig
og færðu öðrum guðum brennifórnir
og tilbáðu verk eigin handa.
En sjálfur skalt þú gyrða lendar þínar,
ganga fram og boða þeim allt sem ég býð þér.
Láttu ekki hugfallast frammi fyrir þeim,
ella svipti ég þig hugrekki fyrir augum þeirra.
Í dag geri ég þig að víggirtri borg,
að járnsúlu, að virkisvegg úr eir
gegn konungunum í Júda
og höfðingjum þar,
gegn prestunum í Júda og stórbændunum.
Þeir munu ráðast gegn þér
en ekki sigra þig
því að ég er með þér til að bjarga þér, segir Drottinn.
Pistillinn 2.Tím 2.8-13
Minnst þú Jesú Krists, hans sem er risinn upp frá dauðum, af kyni Davíðs, eins og boðað er í
fagnaðarerindi mínu. Fyrir það líð ég illt og það jafnvel að vera í fjötrum eins og illvirki. En
orð Guðs verður ekki fjötrað.
Þess vegna þoli ég allt sakir hinna útvöldu til þess að einnig þeir hljóti hjálpræðið í Kristi
Jesú.
Það orð er satt:
Ef vér höfum dáið með honum,
þá munum vér og lifa með honum.
Ef vér erum staðföst,
þá munum vér og með honum ríkja.
Ef vér afneitum honum,
þá mun hann og afneita oss.
Þótt vér séum ótrú,
þá verður hann samt trúr,
því að ekki getur hann afneitað sjálfum sér.
Guðspjallið Mark. 6. (6-13) 14-29
Jesús fór nú um þorpin þar í kring og kenndi. Og hann kallaði þá tólf til sín, tók að senda þá
út, tvo og tvo, og gaf þeim vald yfir óhreinum öndum. Hann bauð þeim að taka ekkert til
ferðarinnar annað en staf, ekki brauð, mal né peninga í belti. Þeir skyldu hafa skó á fótum en
ekki tvo kyrtla. Og hann sagði við þá: „Hvar sem þið fáið inni, þar sé aðsetur ykkar uns þið
leggið upp að nýju. En hvar sem ekki er tekið við ykkur né á ykkur hlýtt, þaðan skuluð þið
fara og hrista dustið af fótum ykkar þeim til viðvörunar.“
Þeir lögðu af stað og prédikuðu að menn skyldu taka sinnaskiptum, ráku út marga illa anda
og smurðu marga sjúka með olíu og læknuðu þá.
Heródes konungur frétti þetta enda var nafn Jesú orðið víðfrægt. Sögðu sumir: „Jóhannes
skírari er risinn upp frá dauðum, þess vegna gerir hann þessi kraftaverk.“
Aðrir sögðu: „Hann er Elía,“ enn aðrir: „Hann er spámaður eins og spámennirnir fornu.“
Þegar Heródes heyrði þetta sagði hann: „Jóhannes, sem ég lét hálshöggva, hann er upp
risinn.“
En Heródes hafði sent menn að taka Jóhannes höndum, fjötra hann og varpa í fangelsi vegna
Heródíasar, konu Filippusar, bróður síns. Hann hafði gengið að eiga hana en Jóhannes hafði
sagt við Heródes: „Þú mátt ekki eiga konu bróður þíns.“
Þess vegna lagði Heródías fæð á Jóhannes og vildi deyða hann en gat ekki því að Heródes
hafði beyg af honum og verndaði hann þar eð hann vissi að hann var maður réttlátur og
heilagur. Hann komst í mikinn vanda þegar hann hlýddi á mál hans en þó var honum ljúft að
hlusta á hann.
En nú kom hentugur dagur. Á afmæli sínu gerði Heródes veislu gæðingum sínum,
hershöfðingjum og fyrirmönnum Galíleu. Dóttir Heródíasar gekk þar inn og sté dans. Hún
hreif Heródes og gesti hans og konungur sagði við stúlkuna: „Bið mig hvers þú vilt og mun
ég veita þér.“
Og Heródes sór henni: „Hvað sem þú biður um það mun ég veita þér, allt að helmingi ríkis
míns.“
Hún gekk þá út og spurði móður sína: „Um hvað á ég að biðja?“
Hún svaraði: „Höfuð Jóhannesar skírara.“ Jafnskjótt skundaði hún til konungs og bað hann:
„Gef mér þegar á fati höfuð Jóhannesar skírara.“
Konungur varð hryggur við en vegna eiðsins og gesta sinna vildi hann ekki synja henni
þessa heldur sendi þegar böðul og bauð að færa sér höfuð Jóhannesar. Hann fór og hjó af
höfuð Jóhannesar í fangelsinu, kom með höfuð hans á fati og færði stúlkunni en stúlkan
móður sinni.
Þegar lærisveinar hans fréttu þetta komu þeir, tóku lík Jóhannesar og lögðu í gröf.
Sálmur Sb 695
Gæskan er öflugri en illskan,
ástin hatri fær breytt,
ljósið lýsir upp myrkrið,
lífið dauða fær eytt.
Sigur er gjöf, sigur er gjöf,
sigur Guðs ástar.
T Desmond Tutu 1995 – John L. Bell 1996 – Arinbjörn Vilhjálmsson 2002 – Vb. 2013