7. sunnudagur eftir þrenningarhátíð Við borð Drottins - Skálholtshátíð
7. sunnudagur eftir þrenningarhátíðVið borð Drottins.
Litur: Grænn.
Vers vikunnar:
„Þess vegna eruð þið ekki framar gestir og útlendingar heldur eruð þið samþegnar hinna heilögu og heimamenn Guðs.“ (Ef 2.19)
Kollekta:
Eilífi Guð sem aldrei bregst í ráðum forsjónar þinnar, við biðjum þig: Tak frá okkur allt, sem okkur má að meini verða og gef okkur það sem farsælir okkur til lífs og sálar. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð: B
Lexía: Jóel 2.21-24
Óttast ekki, land,
heldur fagna og gleðst
því að Drottinn hefur unnið mikil stórvirki.
Óttist ekki, dýr merkurinnar.
Beitilönd öræfanna gróa,
trén bera ávöxt,
fíkjutrén og vínviðurinn veita þrótt sinn.
Gleðjist, Síonarbúar,
og fagnið í Drottni, Guði yðar.
Af réttlæti sínu hefur hann sent yður vorregnið
og eins og fyrrum mun hann gefa yður vorregn og haustregn.
Þreskivellir munu fyllast af korni
og kerin flóa yfir af vínlegi og olíu.
Pistill: Post 2.41-47
En þau sem veittu orði hans viðtöku tóku skírn og þann dag bættust við um þrjú þúsund sálir. Þau ræktu trúlega uppfræðslu postulanna og samfélagið, brotning brauðsins og bænirnar.
Ótta setti að hverjum manni en mörg undur og tákn gerðust fyrir hendur postulanna. Allir þeir sem trúðu héldu hópinn og höfðu allt sameiginlegt. Menn seldu eigur sínar og muni og skiptu meðal allra eftir því sem hver hafði þörf á. Daglega komu menn saman með einum huga í helgidóminum, brutu brauð í heimahúsum, neyttu fæðu saman í fögnuði og einlægni hjartans. Þeir lofuðu Guð og höfðu vinsældir af öllum. En Drottinn bætti daglega við í hópinn þeim er frelsast létu.
Guðspjall: Jóh 6.30-35
Þeir spurðu hann þá: „Hvaða tákn getur þú sýnt okkur svo að við trúum? Hvað afrekar þú? Feður okkar átu manna í eyðimörkinni eins og ritað er: Brauð af himni gaf hann þeim að eta.“
Jesús sagði við þá: „Sannlega, sannlega segi ég yður: Móse gaf yður ekki brauðið af himni heldur gefur faðir minn yður hið sanna brauð af himni. Brauð Guðs er sá sem stígur niður af himni og gefur heiminum líf.“
Þá sögðu þeir við hann: „Drottinn, gef okkur ætíð þetta brauð.“
Jesús sagði þeim: „Ég er brauð lífsins. Þann mun ekki hungra sem til mín kemur og þann aldrei þyrsta sem á mig trúir.