Kristniboðsdagurinn – Annar sunnudagur í nóvember
Kristniboðsdagurinn – Annar sunnudagur í nóvember
Lexía: Jes 12.2-6 Pistill: Róm 10.8-17 Guðspjall: Matt 28.16-20 Eða Matt 9.35-38:
Litur hvítur eða rauður.
Vers
Ég vil vitna um nafn þitt fyrir bræðrum mínum, í söfnuðinum vil ég lofa þig.Sálm. 22.23
Bæn dagsins / kollektan
Guð, sem vilt, að allir menn verði hólpnir og komist til þekkingar á sannleikanum: Send trúa
verkamenn í víngarð þinn og gef þeim styrk til að boða orð þitt, svo að allar þjóðir læri að
þekkja þig, einn sannan Guð og þann, sem þú sendir, Jesú Krist, son þinn og okkar Drottin
sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Lexía: Jes 12.2-6
Sjá, Guð er mitt hjálpræði, ég er öruggur og óttast eigi, því að Drottinn Guð er minn styrkur
og minn lofsöngur, hann er orðinn mér hjálpræði. Þér munuð með fögnuði vatni ausa úr
lindum hjálpræðisins. Og á þeim degi munuð þér segja: Lofið Drottin, ákallið nafn hans.
Gjörið máttarverk hans kunn meðal þjóðanna, hafið í minnum, að háleitt er nafn hans.
Lofsyngið Drottni, því að dásemdarverk hefir hann gjört. Þetta skal kunnugt verða um alla
jörðina. Lát óma gleðihljóm og kveða við fagnaðaró p, þú sem býr á Síon, því að mikill er
Hinn heilagi í Ísrael meðal þín.
Pistill: Róm 10.8-17
Hvað segir það svo? Nálægt þér er orðið, í munni þínum og í hjarta þínu. Það er: Orð
trúarinnar, sem vér prédikum. Ef þú játar með munni þínum: Jesús er Drottinn og trúir í hjarta
þínu, að Guð hafi uppvakið hann frá dauðum, muntu hólpinn verða. Með hjartanu er trúað til
réttlætis, en með munninum játað til hjálpræðis. Ritningin segir: Hver sem trúir á hann, mun
ekki til skammar verða. “Ekki er munur á Gyðingi og grískum manni, því að hinn sami er
Drottinn allra, fullríkur fyrir alla þá sem ákalla hann;” því að hver sem ákallar nafn Drottins,
mun hólpinn verða. En hvernig eiga þeir að ákalla þann, sem þeir trúa ekki á? Og hvernig
eiga þeir að trúa á þann, sem þeir hafa ekki heyrt um? Og hvernig eiga þeir að heyra, án þess
að einhver prédiki? Og hver getur prédikað, nema hann sé sendur? Svo er og ritað: Hversu
fagurt er fótatak þeirra, sem færa fagnaðarboðin góðu. En þeir hlýddu ekki allir
fagnaðarerindinu. Jesaja segir: Drottinn, hver trúði því, sem vér boðuðum?
Guðspjall: Matt 28.16-20
En lærisveinarnir ellefu fóru til Galíleu, til fjallsins, sem Jesús hafði stefnt þeim til. Þar sáu
þeir hann og veittu honum lotningu. En sumir voru í vafa. Og Jesús gekk til þeirra, talaði við
þá og sagði: Allt vald er mér gefið á himni og jörðu. Farið því og gjörið allar þjóðir að
lærisveinum, skírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda, og kennið þeim að halda allt það,
sem ég hef boðið yður. Sjá, ég er með yður alla daga allt til enda veraldar.
Einnig má lesa Matt 9.35-38:
Jesús fór nú um allar borgir og þorp og kenndi í samkundum þeirra. Hann flutti
fagnaðarerindið um ríkið og læknaði hvers kyns sjúkdóm og veikindi. En er Jesús sá
mannfjöldann kenndi hann í brjósti um hann því menn voru hrjáðir og umkomulausir eins og
sauðir er engan hirði hafa. Þá sagði hann við lærisveina sína: „Uppskeran er mikil en
verkamenn fáir. Biðjið því Drottin uppskerunnar að senda verkamenn til uppskeru sinnar.“
Sálmur Sb. 603
1 Ó, Drottinn, ég vil aðeins eitt:
Að efla ríki þitt.
Ó, þökk, að náð sú var mér veitt
sem vakti hjarta mitt.
Ég verður, Jesú, ekki er
að eiga' að vera' í þínum her
en vinarnafn þú valdir mér,
mig vafðir blítt að hjarta þér,
ó, hjálpa mér
að hlýðnast eins og ber.
2 Ó, lát mig fá að finna ljóst
hve fólksins neyð er sár.
Mér gef þinn ástareld í brjóst
og einlæg hryggðartár.
Í ljósi þínu lát mig sjá
hvern lýð sem neyð og heiðni þjá
því neyðin hans er hróp frá þér
að hjálpa - eins og bauðstu mér -
að dauðastund
með djarfri fórnarlund.
3 Þá eitt ég veit: Mitt auga sér
þá undraverðu sýn
er langri ævi lokið er
og líf og kraftur dvín:
Ég sé þitt ríki sigur fær,
til sérhvers lýðs þitt frelsi nær
og þessi mikli helgra her
sem hjálp og lífið fann í þér,
þig, líknin blíð,
mun lofa alla tíð.
T Karl L. Reichelt 1912 – Bjarni Eyjólfsson, 1959 – Sb. 1972