Fyrsti sunnudagur í níuviknaföstu (septuagesimae) Laun og náð
Fyrsti sunnudagur í níuviknaföstu (septuagesimae)
Laun og náð
Vers vikunnar.
„Vér biðjum þig í auðmýkt, ekki vegna verðskuldunar vor sjálfra, heldur í trausti mikillar
miskunnar þinnar. “ (Dan 9.18b)
Litur grænn
Bæn dagsins / kollektan
Drottinn Guð, í mildi þinni gefur þú okkur meir en við höfum til unnið. Því biðjum við þig:
Hjálpa okkur að vera góðgjörn eins og þú og gleðjast yfir því sem þú gefur öðrum. Þess
biðjum við í nafni bróður okkar Jesú Krists. Amen.
Þriðja lestraröð
Lexía Pred. 1. 1-10
Orð prédikarans, sonar Davíðs, konungs í Jerúsalem.
Aumasti hégómi, segir prédikarinn,
aumasti hégómi, allt er hégómi.
Hvaða gagn hefur maðurinn af öllu erfiði sínu
sem hann streitist við undir sólinni?
Ein kynslóð fer, önnur kemur
en jörðin stendur að eilífu.
Og sólin rennur upp og sólin gengur undir
og hraðar sér aftur til samastaðar síns
þar sem hún rennur upp.
Vindurinn gengur til suðurs
og snýr sér til norðurs,
hann snýr sér og snýr sér
og hringsnýst á nýjan leik.
Allar ár renna í sjóinn
en sjórinn fyllist ekki.
Þangað sem árnar renna
munu þær ávallt renna.
Allt er sístritandi,
enginn maður fær því með orðum lýst,
augað verður aldrei satt af að sjá
og eyrað verður aldrei mett af að heyra.
Það sem hefur verið mun verða
og það sem gerst hefur mun enn gerast
og ekkert er nýtt undir sólinni.
Sé nokkuð til er um verði sagt:
Þetta er nýtt,
þá hefur það orðið fyrir löngu,
fyrir okkar tíma.
Pistillinn Fil. 3. 7-14
En það sem var mér ávinningur met ég nú vera tjón sakir Krists. Já, meira að segja met ég allt
vera tjón hjá þeim yfirburðum að þekkja Krist Jesú, Drottin minn. Sakir hans hef ég misst allt
og met það sem sorp til þess að ég geti áunnið Krist og reynst vera í honum, ekki sakir eigin
réttlætis, sem fæst af hlýðni við lögmálið, heldur sakir þess sem trúin á Krist gefur, réttlætið
frá Guði með trúnni. – Ég vil þekkja Krist og kraft upprisu hans, ég vil þjást með honum og
líkjast honum í dauða hans. Mætti mér auðnast að ná til upprisunnar frá dauðum. Ekki er svo
að ég hafi þegar náð því eða sé þegar fullkominn. En ég keppi eftir því ef ég skyldi geta
höndlað það, með því að ég er höndlaður af Kristi Jesú. Systkin, ekki tel ég sjálfan mig enn
hafa höndlað það. En eitt geri ég. Ég gleymi því sem að baki er en seilist eftir því sem fram
undan er og keppi þannig að markinu, til verðlaunanna á himnum, sem Guð hefur í Kristi
kallað okkur til.
Guðspjallið Matt. 19:27-30
Þá sagði Pétur við hann: „Við yfirgáfum allt og fylgdum þér. Hvað munum við hljóta?“
Jesús sagði við þá: „Sannlega segi ég ykkur: Þegar Guð hefur endurnýjað allt og
Mannssonurinn situr í dýrðarhásæti sínu munuð þið, sem fylgið mér, einnig sitja í tólf
hásætum og dæma tólf ættkvíslir Ísraels. Og hver sem hefur yfirgefið heimili, bræður eða
systur, föður eða móður, börn eða akra sakir nafns míns, mun fá allt hundraðfalt aftur og
öðlast eilíft líf. En margir hinir fyrstu verða síðastir og hinir síðustu fyrstir.“
Sálmur Sb 175
1 Þeir lögðu frá sér fisk og net
og fóru' á eftir þér
því eitt er það sem áður var
en annað nú og hér
og nýjan himin, nýja jörð
hinn nýi maður sér.
2 Þitt forna tákn er fiskur sá
sem forðum ristur var
á laun í vegg, í við og stein
og við mér horfir hvar
sem neytt er víns og brotið brauð.
Þú býrð og dvelur þar.
3 Þú kallar yfir alda haf
og allt sem milli ber
því þú ert orð af anda þeim
sem enginn maður sér.
Nú legg ég frá mér fisk og net
og fer á eftir þér.
Hjörtur Pálsson 2003