Öskudagur - Bæn og fasta / Sjálfsprófun og endurnýjun
Litur: Fjólublár
Vers vikunnar (frá miðvikudegi til laugardags):
Snúið yður til Drottins af öllu hjarta yðar,
með föstu, með gráti, með harmakveini. (Sbr. Jl 2.12)
Bæn dagsins:
Guð miskunnseminnar. Þú sem fyrirgefur öllum þeim sem iðrast yfirsjóna sinna og biðja um fyrirgefningu. Gef okkur einnig einlæga iðrun og gef okkur fyrirgefningu og frið, vegna Jesú Krists sonar þíns sem með þér og heilögum anda lifir og ríkir frá eilífð til eilífðar. Amen.
Þriðja lestraröð
Lexía: Jl 2.12-18
En jafnvel nú,
segir Drottinn,
skuluð þér snúa yður til mín af öllu hjarta yðar,
með föstu, með gráti, með harmakveini.
Rífið hjörtu yðar
fremur en klæði yðar
og snúið aftur til Drottins, Guðs yðar.
Miskunnsamur er hann og líknsamur,
seinn til reiði og gæskuríkur
og iðrast hins illa.
Hver veit nema hugur hans snúist enn og mildist
svo að hann láti blessun hljótast af,
svo að þér getið
aftur fært Drottni,
Guði yðar,
matfórn og dreypifórn.
Þeytið hornið á Síon,
boðið helga föstu,
efnið til helgrar samkundu.
Kallið fólkið saman,
helgið söfnuðinn,
safnið saman öldungunum,
safnið saman börnunum,
jafnvel þeim sem enn eru á brjósti.
Brúðguminn komi út úr herbergi sínu
og brúðurin undan tjaldhimni sínum.
Milli fordyris og altaris
skulu prestarnir, þjónar Drottins,
gráta og segja:
„Þyrmdu þjóð þinni, Drottinn,
ofurseldu arfleifð þína ekki smáninni
svo að þjóðirnar hæði hana.
Hví skyldu þjóðirnar spyrja:
Hvar er Guð þeirra?
Megi vandlæting Drottins kvikna vegna lands hans
og megi hann sýna þjóð sinni umhyggju.“
Pistill: 2Pét 1.3-12
Með guðlegum mætti sínum hefur Jesús Kristur gefið okkur allt sem þarf til lífs í guðrækilegri breytni, með þekkingunni á honum sem hefur kallað okkur með dýrð sinni og dáð. Með því hefur hann veitt okkur dýrmæt og háleit fyrirheit sem fela í sér að þið komist undan spillingunni í heiminum sem girndin veldur og verðið hluttakendur í guðlegu eðli. Leggið þess vegna alla stund á að sýna í trú ykkar dygð og í dygðinni þekkingu, í þekkingunni sjálfsaga, í sjálfsaganum þolgæði, í þolgæðinu guðrækni, í guðrækninni bróðurelsku og í bróðurelskunni kærleika. Ef þið hafið þetta til að bera og vaxið í því verðið þið hvorki iðjulaus né mun þekking ykkar á Drottni vorum Jesú Kristi reynast dáðlaus og ávaxtalaus. En sá sem ekki hefur þetta til að bera er blindur í skammsýni sinni og hefur misst sjónar á að hann hafi verið hreinsaður af fyrri syndum sínum.
Kostið þess vegna fremur kapps um, systkin, að gera köllun ykkar og útvalning vissa. Ef þið gerið það munuð þið aldrei hrasa. Þá mun ykkur ríkulega veitast inngangur í hið eilífa ríki Drottins vors og frelsara Jesú Krists.
Þess vegna ætla ég mér ávallt að minna ykkur á þetta enda þótt þið vitið það og hvikið ekki frá sannleikanum sem þið nú hafið öðlast.
Guðspjall: Matt 6.16-21
Þegar þér fastið þá verið ekki döpur í bragði eins og hræsnarar. Þeir afmynda andlit sín svo að engum dyljist að þeir fasta. Sannlega segi ég yður, þeir hafa tekið út laun sín. En þegar þú fastar þá smyr höfuð þitt og þvo andlit þitt svo að menn verði ekki varir við að þú fastir heldur faðir þinn sem er í leynum. Og faðir þinn, sem sér í leynum, mun umbuna þér.
Safnið yður ekki fjársjóðum á jörðu þar sem mölur og ryð eyðir og þjófar brjótast inn og stela. Safnið yður heldur fjársjóðum á himni þar sem hvorki eyðir mölur né ryð og þjófar brjótast ekki inn og stela. Því hvar sem fjársjóður þinn er þar mun og hjarta þitt vera.
Sálmur 374
Þú, Drottinn, átt það allt,
sem öðlumst vér á jörð.
Hver gjöf og fórn, sem færum vér,
er fátæk þakkargjörð.
Vor eign og allt vort lán
þér einum heyrir til.
Þótt gætum vér það gefið allt,
vér gerðum engin skil.
Hér svíða hjartasár,
hér sveltur fátækt barn,
og vonarsnauður villist einn
um veglaust eyðihjarn.
Að létta bróður böl
og bæta raunir hans,
að seðja, gleðja, græða mein
sé gleði kristins manns.
Vér trúum á þitt orð,
þótt efi myrkvi jörð,
að miskunn við hinn minnsta sé
þér, mannsins sonur, gjörð.
How - Sigurbjörn Einarsson