5. sunnudagur eftir þrenningarhátíð Eftirfylgd / Kallið sem bjargar / Send mig !
5. sunnudagur eftir þrenningarhátíð
Eftirfylgd / Kallið sem bjargar / Send mig !
Litur grænn
Vers vikunnar:
„Því að af náð eruð þið hólpin orðin fyrir trú. Þetta er ekki ykkur að þakka. Það er Guðs
gjöf.“ (Ef 2.8)
Bæn dagsins / kollektan
Eilífi Guð, þú sem kallar í þína þjónustu karla og konur og framkvæmir með þeim verk þitt á
jörðu. Við biðjum þig: Opna þú eyru okkar og hjörtu, að við heyrum þegar þú kallar og
fylgjum honum sem þú sendir, Jesú Kristi, sem er bróðir okkar og Drottinn, og lifir og ríkir
með þér og heilögum Anda frá eilífð til eilífðar.
Þriðja lestraröð
Lexía: 1Mós 12.1-4a.
Drottinn sagði við Abram: „Far þú burt úr landi þínu, frá ættfólki þínu og úr
húsi föður þíns til landsins sem ég mun vísa þér á. Ég mun gera þig að
mikilli þjóð og blessa þig og gera nafn þitt mikið. Blessun skalt þú
vera. Ég mun leiða blessun yfir þá sem blessa þig og bölvun yfir þann
sem formælir þér. Allar ættkvíslir jarðarinnar munu af þér blessun
hljóta.“ Þá lagði Abram af stað eins og Drottinn hafði sagt honum og
Lot fór með honum.
Pistill: Róm 16.1-7.
Ég bið ykkur fyrir hana systur okkar, Föbe, sem er djákni safnaðarins í Kenkreu. Veitið henni
viðtöku vegna Drottins, eins og kristnum ber, og hjálpið henni með allt sem hún þarf
að fá hjá ykkur. Hún hefur verið bjargvættur margra, þar á meðal mín sjálfs. Heilsið Prisku og
Akvílasi, samverkamönnum mínum í Kristi Jesú. Þau hafa stofnað lífi sínu í hættu fyrir mig.
Fyrir það votta ég þeim þakkir, ekki ég einn heldur og allir söfnuðir meðal heiðinna þjóða.
Heilsið einnig söfnuðinum sem kemur saman í húsi þeirra. Heilsið
Epænetusi, mínum elskaða. Hann er frumgróðinn handa Kristi í Asíu. Heilsið Maríu sem
mikið hefur erfiðað fyrir ykkur. Heilsið Andróníkusi og Júníu, ættmennum mínum og
sambandingjum. Þau skara fram úr meðal postulanna og gengu Kristi á hönd á undan mér.
Guðspjall: Lk 8.1-3 .
Eftir þetta fór Jesús um, borg úr borg og þorp úr þorpi, prédikaði og flutti fagnaðarerindið um
Guðs ríki. Með honum voru þeir tólf og konur nokkrar er læknaðar höfðu verið af illum
öndum og sjúkdómum. Það voru þær María, kölluð Magdalena, er sjö illir andar höfðu farið
úr, Jóhanna, kona Kúsa, ráðsmanns Heródesar, Súsanna og margar aðrar. Þær hjálpuðu þeim
með fjármunum sínum.
Sálmur Sb 588
1 Þú heyrir spurt: Er hjálp að fá
og hvar er ljós og dag að sjá?
Ef hjartað týnir sjálfu sér
hvar sé ég leið, hver bjargar mér?
Þú heyrir svar ef hlustar þú
af hjartans þörf, í barnsins trú
því Kristur Jesús þekkir þig
og þú ert hans, hann gaf þér sig.
2 Hve margur sár og meiddur spyr
við myrkvuð sund og luktar dyr.
En hlusta nú, þú heyrir svar
og heilög miskunn talar þar.
Þú heyrir svar ...
3 Já, Kristur segir: Kom til mín,
ég kominn er að vitja þín
og lækna þig og lýsa þér
til lífs og sigurs: Fylg þú mér.
Þú heyrir svar ...
T Sigurbjörn Einarsson 1977 – Sb. 1997