SÁLMAFOSS
Föstudagurinn 30. ágúst kl. 16:30-22:00 í Lindakirkju.
16 kórar af öllu landinu hafa skráð sig til leiks og munu þeir ásamt einsöngvurum syngja úrval úr nýju sálmabókinni. Dagskráin verður í beinu streymi.
Kórar sem taka þátt í Sálmafossi
Karlakór KFUM
Kirkjukór Hraungerðis- og Villingaholtssókna
Kór Egilsstaðakirkju
Kór Grafarvogskirkju
Kór Ísafjarðarkirkju
Kór Kópavogskirkju
Kór Lindakirkju
Kór Njarðvíkurkirkju
Kór Selfosskirkju
Kór Vídalínskirkju
Kór Víðistaðakirkju
Ljósbrot, kvennakór KFUK
Seimur, kór Ástjarnarkirkju
Sönghópurinn við Tjörnina
Vox Gospel
Vox Populi
Þá verða með söngkonurnar
Kirstín Erna Blöndal og Ragnheiður Gröndal
Kirkjukórinn
Öll sem vilja geta tekið þátt í Kór Kirkjudaganna sem syngur við upphaf Sálmafossins og við hátíðarhelgistundina á laugardeginum kl. 16:00. Hver sem er getur skráð sig til þátttöku á netfangið songmalastjori@kirkjan.is . Sendar verða út hljóðskrár og nótur til þeirra sem taka þátt. Sameiginleg æfing kórsins verður fimmtudaginn 29. ágúst kl. 19 í Lindakirkju.
Liljan
Heiðursviðurkenningin Liljan verði afhend föstudaginn 30. ágúst kl 15:00. Þetta árið er hún veitt til fulltrúa í kirkjukórum landsins sem hafa sungið í kirkjukórum í 30 ár eða lengur. Biskup Íslands, sr. Agnes M. Sigurðardóttir mun veita viðurkenninguna.