Með nýjum þjóðkirkjulögum, sem tóku gildi 1. júlí 2021, fékk kirkjuþing almennt æðsta vald í málefnum þjóðkirkjunnar.
Kirkjuþing starfar að jafnaði í tveimur þinglotum þ.e. að hausti og að vori 3 – 4 daga í senn. Ef nauðsyn krefur, getur forseti kallað til frekari þingfunda. Heimilt er að halda þingfundi með fjarfundabúnaði. Kirkjuþing fjallar um mál í tveimur umræðum, með umfjöllun þingnefndar á milli fyrri og síðari umræðu. Þingmál má afgreiða með einni umræðu án umfjöllunar fastrar þingnefndar ef enginn mælir því í mót.
2. Málfrelsi. Kirkjuþingsfulltrúar hafa málfrelsi á kirkjuþingi við umræður mála eftir ákveðnum reglum.
3. Atkvæðisréttur. Kjörnir kirkjuþingsfulltrúar hafa atkvæðisrétt um þingmál, þ.e. framgang þeirra til annarrar umræðu og fastrar þingnefndar og síðan endanlegrar niðurstöðu máls. Þá felst í atkvæðisréttinum að kjósa til trúnaðarstarfa, þ.e. forseta, varaforseta, fastar þingnefndir, þingskrifara, framkvæmdanefnd kirkjuþings og aðrar nefndir sem kirkjuþing kýs til.
4. Nefndastarf. Þýðingarmikill hluti starfs kirkjuþings fer fram í föstum þingnefndum sem fá mál til umfjöllunar eftir fyrri umræðu. Kjörnir fulltrúar, utan forseta, sitja í einhverri af þremur fastanefndum þingsins, þ.e. allsherjar-, fjárhags- eða löggjafarnefnd.
5. Fyrirspurnartímar á hverju þingi. Þingfulltrúar geta á hverju reglulegu kirkjuþingi borið fram skriflegar fyrirspurnir til biskups Íslands, vígslubiskupanna í Skálholti og á Hólum og framkvæmdanefndar kirkjuþings.
6. Utandagskrárumræða. Kirkjuþingsfulltrúar geta óskað eftir sérstökum fundi um tiltekið málefni sem ekki er á dagskrá þingsins. Forseti kirkjuþings getur einnig ákveðið að slíkur fundur skuli haldinn.
Kirkjuþing setur starfsreglur um málefni þjóðkirkjunnar, þar á meðal um skipulag kirkjuþings, svo sem kjör til þess, kjördæmaskipan, fjölda kirkjuþingsmanna, þingsköp og verkefni þingsins. Enn fremur samþykkir kirkjuþing ályktanir og samþykktir um málefni þjóðkirkjunnar.
Kirkjuþing hefur að jafnaði frumkvæði að frumvörpum til laga um málefni þjóðkirkjunnar og leggur til við ráðherra kirkjumála að þau verði flutt á Alþingi.
Ráðherra kirkjumála leitar umsagnar og tillagna kirkjuþings um lagafrumvörp um kirkjuleg málefni sem hann hyggst flytja á Alþingi.
Á kirkjuþingi eiga sæti 29 kjörnir fulltrúar, 17 leikmenn og 12 vígðir menn. Auk þess eiga sæti á kirkjuþingi með málfrelsi og tillögurétt, biskup Íslands, vígslubiskupar Hóla- og Skálholtsumdæma, einn fulltrúi guðfræði- og trúarbragðafræðideildar Háskóla Íslands og einn fulltrúi kirkjuþings unga fólksins. Hinir kjörnu fulltrúar eru kosnir í leynilegri kosningu, til fjögurra ára.
Kjördæmi leikmanna eru níu talsins, sem ná yfir eitt eða fleiri prófastsdæmi. Úr þremur fjölmennustu kjördæmunum, þ.e. Reykjavíkurprófastsdæmi vestra og eystra og Kjalarnesprófastsdæmi koma þrír leikmenn úr hverju kjördæmi fyrir sig. Úr Eyjarfjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi og Suðurprófastsdæmi koma tveir leikmenn úr hvoru kjördæmi fyrir sig. Úr öðrum kjördæmum kemur einn leikmaður fyrir hvert kjördæmi. Í öllum kjördæmum leikmanna eru kjörnir tveir varamenn fyrir hvert kjördæmi.
Kjördæmi vígðra manna eru þrjú talsins. Úr Reykjavíkurkjördæmi koma sex vígðir menn og þrír til vara. Úr Skálholtskjördæmi og Hólakjördæmi koma þrír vígðir menn úr hvoru kjördæmi fyrir sig og tveir til vara í hvoru kjördæmi.
Forseti kirkjuþings er kosinn til fjögurra ára úr röðum leikmanna. Á þinginu starfa allsherjar-, fjárhags- og löggjafarnefnd og eiga allir fulltrúar, nema forseti, sæti í einhverri þeirra.
Arna Grétarsdóttir
Arnfríður Guðmundsdóttir
Axel Árnason Njarðvík
Berglind Hönnudóttir
Bryndís Malla Elídóttir
Elínborg Sturludóttir
Eva Björk Valdimarsdóttir
Gísli Gunnarsson
Guðni Már Harðarson
Hildur Inga Rúnarsdóttir
Jóhanna Gísladóttir
Magnús Erlingsson
Sigurður Grétar Sigurðsson
Þuríður Björg Wiium Árnadóttir
Anna Guðrún Sigurvinsdóttir
Auður Thorberg Jónasdóttir
Árni Helgason
Áslaug I. Kristjánsdóttir
Drífa Hjartardóttir
Einar Örn Björgvinsson
Einar Már Sigurðsson
Gígja Eyjólfsdóttir
Jónína Rós Guðmundsdóttir
Konráð Gylfason
Kristrún Heimisdóttir
Margrét Eggertsdóttir
Ólafur Gestur Rafnsson
Óskar Magnússon
Rúnar Vilhjálmsson
Stefán Magnússon
Steindór Runiberg Haraldsson
Fastar þingnefndir
Fastar þingnefndir kirkjuþings eru kjörnar í upphafi hvers kirkjuþings og gildir kosningin uns kosið hefur verið til nefndanna að nýju á næsta kirkjuþingi á eftir. Formenn þeirra skulu kosnir á þingfundi. Kjörbréfanefnd starfar þó út kjörtímabilið. Forsætisnefnd ber ábyrgð á skipan fastanefnda.
Fastar þingnefndir kirkjuþings eru:
Allsherjarnefnd
Allsherjarnefnd kirkjuþings, skipuð 10 kirkjuþingsmönnum. Allsherjarnefnd fær þær skýrslur sem skylt er að leggja fram á kirkjuþingi umfjöllunar svo og öll önnur þingmál, sem falla utan verksviðs hinna nefndanna.
Auður Thorberg, formaður
Sr. Axel Árnason Njarðvík, varaformaður
Áslaug Kristjánsdóttir
Sr. Benjamín Hrafn Böðvarsson
Sr. Eva Björk Valdimarsdóttir
Jónína Rós Guðmundsdóttir
Ríkharður Ibsen
Ólafur Gestur Rafnsson
Rúnar Vilhjálmsson
Sr. Þuríður Björg Wiium Árnadóttir
Fjárhagsnefnd
Fjárhagsnefnd kirkjuþings, skipuð 9 kirkjuþingsmönnum. Nefndin skal fá til umsagnar fjárhagsáætlun þjóðkirkjunnar og yfirlit reikninga kirkjulegra embætta, stofnana og sjóði kirkjunnar sem séu endurskoðaðir svo og önnur mál fjárhagslegs eðlis sem fram eru borin á þinginu.
Sr. Arna Grétarsdóttir
Árni Helgason
Einar Örn Björgvinsson
Einar Már Sigurðarson,
Sr. Guðni Már Harðarson
Sr. Hildur Inga Rúnarsóttir
Margrét Eggertsdóttir, formaður
Sr. Sigurður Grétar Sigurðsson, varaformaður
Steindór R. Haraldsson
Löggjafarnefnd
Löggjafarnefnd Kirkjuþings, skipuð 9 kirkjuþingsmönnum. Nefndin skal fjalla um öll þau mál sem fram eru borin á þinginu og varða löggjöf og starfsreglur.
Sr. Bryndís Malla Elídóttir, formaður
Anna Guðrún Sigurvinsdóttir
Sr. Elínborg Sturludóttir
Sr. Jóhanna Gísladóttir
Konráð Gylfason
Kristrún Heimisdóttir
Sr. Magnús Erlingsson
Óskar Magnússon
Stefán Magnússon
Forseti kirkjuþings getur kallað saman fastar þingnefndir milli kirkjuþinga ef brýna nauðsyn ber til.
Kjörbréfanefnd kirkjuþings
Hún er kosin við upphaf nýkjörins kirkjuþings. Nefndin rannsakar kjörbréf, kosningu þingmanna og kjörgengi.
Sr. Benjamín Hrafn Böðvarsson
Sr. Hildur Inga Rúnarsdóttir
Margrét Eggertsdóttir
Steindór R. Haraldsson formaður
Þuríður Björg Wiium Árnadóttir
Kirkjuþing getur kosið nefndir til að fjalla um einstök mál.
Um málsmeðferðina gilda frá og með 1. janúar 2022, ákvæði laga um þjóðkirkjuna nr. 77/2021 og starfsreglur um þingsköp kirkjuþings nr. 10/2021.
Mál á kirkjuþingi geta verið tillögur að starfsreglum, tillögur til þingsályktunar og skýrslur. Skylt er að leggja fram á reglulegu kirkjuþingi að hausti skýrslu framkvæmdanefndar kirkjuþings og skýrslu um fjármál þjóðkirkjunnar og fjárhagsáætlun þjóðkirkjunnar fyrir næsta almanaksár. Um mál á kirkjuþingi getur verið að ræða frá
a) kirkjustjórninni þ.e. mál sem biskup Íslands, forsætisnefnd kirkjuþings eða framkvæmdanefnd kirkjuþings flytja. Jafnframt flytur biskupafundur tillögur um skipan sókna, prestakalla og prófastsdæma og tiltekna aðra málaflokka
b) einstökum kjörnum þingfulltrúum eða öðrum fulltrúum með seturétt á kirkjuþingi
c) fastanefndum kirkjuþings eða öðrum nefndum sem kirkjuþing hefur kosið til að fjalla um tiltekið málefni og eftir atvikum flytja þingmál ef þurfa þykir. Skilyrði er að fulltrúi á kirkjuþingi, einn eða fleiri, sitji í slíkri nefnd svo það sé unnt.
Ofangreind mál eru send forseta kirkjuþings og eiga að jafnaði hafa borist forseta eigi síðar en fjórum vikum fyrir upphaf þings. Þó mega hin skyldubundnu mál berast þremur vikum fyrir þing.
Í upphafi hvers reglulegs kirkjuþings að hausti er kosið til fastra þingnefnda. Þær eru þrjár; allsherjarnefnd sem fjallar um mál sem geta talist almenns eðlis, fjárhagsnefnd sem fjallar um mál sem lúta fyrst og fremst að fjármálum og löggjafarnefnd, sem fjallar um löggjöf og starfsreglur.
Hvert mál skal rætt í tveimur umræðum á þingfundi, fyrri og seinni umræðu. Þó er heimilt að afgreiða mál í einni umræðu og án umfjöllunar fastanefndar kirkjuþings mæli enginn kirkjuþingsfulltrúi gegn því.
Mál er sett á dagskrá þingfundar samkvæmt nánari ákvörðun forseta.
Verði tvær umræður um þingmál gildir eftirfarandi um málsmeðferð. Flutningsmaður mælir fyrir málinu í fyrri umræðu og gerir tillögu um vísun til tiltekinnar þingnefndar. Að fyrri umræðu lokinni eru greidd atkvæði um hvort málinu skuli vísað til síðari umræðu. Ef það er samþykkt eru greidd atkvæði um tillögu um vísun til þingnefndar. Ef sú tillaga er samþykkt í atkvæðagreiðslunni gengur málið til hlutaðeigandi nefndar. Nefndin fjallar um málið á nefndarfundi með samræðum og eftir atvikum með gagnaöflun og viðtölum við þá aðila sem málið varðar eða sérfræðinga á málasviðinu. Nefndin afgreiðir mál frá sér og getur verið um eftirfarandi að ræða: Þingnefnd getur mælt með því að tillaga sé samþykkt óbreytt eða lagt fram breytingatillögu. Einnig gæti nefnd lagt til að tillaga verði ekki samþykkt.
Þingnefnd skilar frá sér nefndaráliti sem er rökstuðningur fyrir afgreiðslu nefndarinnar og breytingatillögu ef því er að skipta. Stundum er viðbótarályktun frá þingnefnd í máli. Getur þá verið um að ræða að lagt er til að tilteknum þáttum máls er frestað uns fjallað hefur verið um það á öðrum kirkjulegum vettvangi, t.d. á héraðsfundum. Einnig getur verið um að ræða tilmæli eða ábendingar til kirkjustjórnarinnar sem tengjast málinu. Forseti setur að þessu búnu málið á dagskrá til annarrar umræðu og atkvæðagreiðslu. Mælt er fyrir nefndarálitinu af einum nefndarmanna hlutaðeigandi þingnefndar og önnur umræða fer síðan fram. Að henni lokinni fer fram atkvæðagreiðsla um málið og úrlausn þingnefndarinnar. Atkvæðagreiðslan getur verið í nokkrum liðum þ. e. um einstaka málsliði í senn, allt eftir eðli málsins og úrlausn þingnefndarinnar.
Að lokinni atkvæðagreiðslu liggur fyrir formleg og endanleg úrlausn kirkjuþings á málinu. Sú úrlausn er birt á vef kirkjunnar og nefnist endanleg útgáfa málsins Gerð kirkjuþings. Ef um starfsreglur er að ræða eru þær birtar í Kirkjuþingstíðindum á vef kirkjunnar.
Sérstakar reglur gilda þegar nýkjörið kirkjuþing kemur saman m.a. skal forseti þingsins kjörinn til fjögurra ára.
Fyrirspurnatími er á hverju kirkjuþingi. Þá geta kirkjuþingsmenn lagt fram fyrirspurnir til Biskups Íslands, vígslubiskupanna í Skálholti og á Hólum og framkvæmdanefndar kirkjuþings.