Ég held að það sé einn af
styrkleikum þjóðkirkjunnar að hún getur boðið upp á fjölbreytt starf sem höfðar
til ólíkra hópa fólks. Því þrátt fyrir að Kristur kenni okkur að við séum eitt,
þá er því rækilega haldið til haga að mannflóran sé fjölbreytt (sbr. Fyrra Korintubréf
12:12-31). Það væri nú bara drepleiðinlegt ef við værum öll eins, en það
breytir því ekki að við erum eitt, við erum systkini í Kristi og höfum þá
köllun að lifa í kærleika og friði hvort við annað.
Ég kippi mér ekki upp við
að í kirkju á höfuðborgarsvæðinu sé reglulega karlakaffi þar sem málsmetandi
karlar halda erindi fyrir aðra karla, eins þykir mér bara gott mál að í kirkju
úti á landi sé prjónasamvera auglýst sérstaklega fyrir konur, þótt það sé nú ólíklegt
að mér væri úthýst ef ég kæmi og vildi prjóna með. Foreldramorgnar í kirkjum landsins
eru hugsaðir fyrir foreldra ungra barna, eldri borgara samverur fyrir eldri borgara
og þannig er það í ýmsu kirkjustarfi að það er ákveðinn markhópur sem starfið
beinist að.
Hér á Akureyri reiknast
mér til að undarnfarið starfsár hafi til dæmis verið hátt í 170 samverur fyrir
börn í söfnuðum þjóðkirkjunnar. Í Glerárkirkju og í Akureyrarkirkju er starf
fyrir 6-9 ára börn, 10-12 ára börn, 14-16 ára ungmenni, auk barnakóra,
æskulýðskóra og sunnudagaskóla.
170 samverur fyrir börn
og ungmenni hér í bænum þar sem var sungið, leikið, fluttur uppbyggjandi
boðskapur og þeim gefið tækifæri til að tilheyra samfélagi sem er grundvallað á
kærleika og mannvirðingu.
Í sumar standa kirkjurnar
hér í bænum að námskeiðum fyrir börn og ungmenni. Í tæpan áratug hafa
sumarnámskeið Glerárkirkju verið fullbókuð og skapað sér orðspor sem fagleg, vönduð
og skemmtileg námskeið fyrir börn.
Tvö þeirra sem koma að
því námskeiði koma líka að öðru námskeiði sem haldið verður í Akureyrarkirkju
að frumkvæði æskulýðsfulltrúa kirkjunnar.
Það er Litríkt sumarnámskeið
fyrir hinsegin ungmenni í 8. – 10. bekk.
Mörg hafa fagnað því að kirkjan
bjóði upp á þetta sumarnámskeið, en einhver upplifa það sem árás, að þarna sé
búin til aðgreining, að önnur börn verði út undan.
Þessi þrjú skipti eru
0.02% af öllu því starfi sem við bjóðum upp á fyrir ungmenni í bænum. Þessi þrjú
skipti miða að því að skapa öruggt umhverfi þar sem þátttakendur vita fyrir
víst að þau muni ekki upplifa fordóma eða útilokun, þar sem þau geta kynnst
gagnlegum verkfærum og bjargráðum eins og núvitund og íhugun. Þar sem við hjálpumst
að við að gera kirkjuna stærri, vinnum gegn fordómum og ítrekum það að kirkjan
er fyrir okkur öll.
Þar sem við vinnum að einingu og kærleika eins og Kristur
kennir.
Ég vona að það sé
framtíðardraumur okkar allra að tilheyra litríkri kirkju, hvort sem við sækjum
karlakaffið, sunnudagaskólann eða æskulýðsstarfið.
Guð blessi litríkt starf
í öllum söfnuðum landsins.