Jólin hitta fólk misjafnlega fyrir. Sum okkar hlakkar mikið til og
við njótum undirbúnings og amsturs aðventu, aðrir vilja ekki af þessum
tíma vita og enn aðrir kvíða öllu tilstandinu. Það er vont að undirbúa
jól með kvíða. Það er hægt að gera ýmislegt til að minnka kvíðann og
langar mig að nefna nokkur atriði. Þú getur tekið vald yfir þinni
aðventu og jólum með öðru hugarfari og nýrri nálgun.
Við kvíða er verst að gera ekki neitt því þá miklast verkefnin stöðugt
fyrir manni og mús verður að fjalli. Byrjaðu að takast á við verkefnið
en frestaðu því ekki. Skrifaðu niður það sem þarf að gera, skiptu því í
þrennt: 1. Það sem er nauðsynlegt. 2. Það sem væri gaman að hafa. 3. Það
sem má sleppa. Taktu síðan lista nr tvö og skerðu niður af honum eins
og hægt er. Að því loknu skaltu einbeita þér að einu í einu af því sem
er mikilvægt, búta verkefnin niður og gefðu þér frelsi gagnvart hinu, þú
mátt sleppa. Þetta snýst nefnilega svo mikið um kröfurnar sem við
setjum á okkur sjálf. Minnkaðu innri kröfurnar á þig þannig að þér líði
skár með að gera það sem er nauðsynlegt. Þegar þú kemst af stað með það
sem er mikilvægt þá finnur þú til smá léttis og gleðin er handan við
horn þess að sleppa vondu innri kröfunum frá sér. Ef þú hefur alltaf
bakað einfaldaðu það með því að kaupa tilbúið deig og gera eina sort. Ef
ytri kröfurnar í auglýsingum trufla þig, slökktu á útvarpinu og netinu,
settu á þína tónlist sem lyftir þér upp. Það er hægt að stjórna
umhverfinu (fyrir utan það sem við erum tilneidd að vera í) með því að
velja sjálf hvaða áreiti við fyllum veru okkar með í desember. Forðastu
það sem þú finnur að dregur þig niður, veldu frekar að gera góða hluti
fyrir þig nokkrum sinnum í viku. Gönguferðir í birtunni, sérstaklega í
náttúrunni gera gagn, horfa á sólarupprás, fara með bæn, samvera með
fjölskyldu eða vini, tónleikar og kirkjuferð, lestur góðra bóka, bíómynd
o. fl. Veldu eitthvað gott fyrir þig eins og mola úr konfektöskju, eitt
á dag.
Fyrir þau sem hafa misst ástvin á árinu eða hafa átt erfiða æsku eru
jólin viðkvæmur tími. Hjá syrgjendum er gott að breyta ekki of miklu og
lækka kröfurnar. Hafa afmarkaða stund í byrjun hátíðar fyrir framan
mynd af ástvininum, kveikja á kerti, þakka og biðja. Ný dögun
(nydogun.is) eru samtök um sorg og sorgarviðbrögð, þar eru gagnlegar
upplýsingar.
Fyrir þau sem eiga erfiðar minningar úr æsku sem lita jólin þá er
mikilvægt að spyrja sig; get ég breitt yfir jólatímann með nýrri hugsun,
get ég búið til jákvæðan sið sem nærir mig og mína? Það skilar aldrei
fullnægjandi árangri nema eitthvert græðsluferli gagnvart fortíðinni
hafi átt sér stað eða sé í ferli. Stóri plúsinn við jólin er að barnið í
jötunni hefur upplifað allan sársauka í mannlífinu með veru sinni á
jörð. Það var svo óvelkomið af heiminum að því var úthýst, varð að
fæðast í fjárhúsi. Jesús upplifði margt andstreymi og var drepinn eins
og hver annar glæpamaður. Samt höldum við hátíðina miklu um hann af því
hann færði okkur Guð og tengdi okkur við almættið. Í sínu mótlæti,
einelti og sársauka fékk hann kraft og endurnæringu í gegnum bæn til
þess er allar bænir heyrir. Besta ráðið sem ég kann er að opna sig í bæn
fyrir Jesú með alla hluti. Hann skilur, hann á anda elsku og uppörvunar
og hann biður fyrir þér á himnum.
Góð saga eftir Watkins segir:
Það eru tveir úlfar að takast á innra með þér, sagði afi. Annar er
Óttinn sem er reiður, bitur og tortrygginn. Hinn er trúin, vonin og
kærleikurinn sem fela í sér mildi, hugrekki og örlæti. Hvor vinnur,
sagði barnið? Sá sem þú fóðrar, svaraði afi. Fóðrum það góða með okkur í
desember.