Háttvirti alþingismaður.
Nú liggur fyrir Alþingi frumvarp ríkisstjórnarinnar að fjárlögum fyrir árið 2013, þar sem enn er gerð atlaga að sóknargjaldinu og öðrum tekjustofnum Þjóðkirkjunnar. Og þá auðvitað líka að tekjustofnum annara trúfélaga. Ég vil því leyfa mér að beina tíu spurningum til þín og óska eftir svörum við þeim á opinberum vettvangi, en þó fyrst og fremst við afgreiðslu þína á frumvarpinu:
1. Er þér ljóst, að sóknargjaldið er í eðli sínu félagsgjald trúfélaganna, sem ríkið hefur tekið að sér að innheimta fyrir þeirra hönd en skilar síðan ekki nema að hluta?
Ég bið þig, kæri alþingismaður, að grípa ekki til þess útúrsnúnings, að lagatæknilega sé um að ræða fjárveitingu frá Alþingi. Við upptöku staðgreiðslukerfis skatta tók ríkið að sér þá þjónustu, sem gjaldheimturnar sáu almennt áður um, þ.e. að innheimta sóknargjöldin, á svipan hátt og gert er í vel flestum löndum Evrópu. Það er hins vegar sérstætt hér á landi, að á yfirstandandi ári heldur ríkið eftir u.þ.b. einum þriðja af því gjaldi, sem innheimt er skv. lögum um sóknargjöld, í stað þess að skila því til réttmætra eigenda sinna.
2. Er þér ljóst, að jafnvel þótt það væri viðurkennt, að réttlætanlegt sé að trúfélögin taki þátt í aðhaldsaðgerðum ríkisins með því að gefa eftir hluta af félagsgjöldum sínum, þá hefur niðurskurður sóknargjaldsins frá bankahruni verið tvöfalt meiri en niðurskurður til annarra aðila sem um er fjallað á fjárlögum?
Þessi staðreynd er m.a. leidd í ljós í skýrslu, sem starfshópur, skipaður af innanríkisráðherra, skilaði sl. vor. http://www.innanrikisraduneyti.is/frettir/nr/28052 Kemur þar m.a. fram, að þessi umframskerðing nemur frá árinu 2008 vel á þriðja milljarð króna. Allt töluefni í þessari skýrslu er byggt á opinberum gögnum og verða niðurstöðurnar því vart véfengdar. Enda hefur innanríkisráðherra lýst því yfir, að hér hafi verið farið offari og því mælst til þess að þessi umframskerðing verði leiðrétt.
3. Er þér ljóst, að í fjárlagafrumvarpinu fyrir ári 2013 er gert ráð fyrir áframhaldandi aukinni skerðingu sóknargjaldsins?
Ekki er að hálfu fjármálaráðuneytisins gert ráð fyrir neinni leiðréttingu, þrátt fyrir tillögur innaríkisráðuneytisins. Það er því ljóst, að við fjárlagagerðina er hvorki gætt meðalhófs né jafnræðisregla virt.
4. Er þér ljóst, að sóknargjaldið í ár er að krónutölu mitt á milli þeirrar upphæðar sem það var árin 2005 og 2006, þótt vísitala neysluverðs hafi frá þeim tíma hækkað um u.þ.b. 64%?
Þarf því varla að undra, þótt víða stefni í þrot varðandi starf safnaðanna, eins og bent er á í umræddri skýrslu. Það er því varla heldur ofmælt, sem bókað var í áliti fjárlaganefndar sl. haust, að sóknargjöld hafi “lækkað mun meira en sem nemur hagræðingarkröfu á almennan rekstur ríkisins.”
5. Er þér ljóst, að heildarupphæð sóknargjaldsins fyrir næsta ár er, skv. fyrirliggjandi frumvarpi, 598 milljónum lægri, í krónum talið, en hún var árið 2008 eða fyrir 6 árum?
Á þessum tíma hefur vísitala neysluverðs samt hækkað um 40,5%!
6. Er þér ljóst að niðurskurður sóknargjaldsins hefur leitt til stórfelds samdráttar í þjónustu safnaðanna, sem hafa þurft að segja upp starfsfólki, lækka laun og draga verulega úr starfi?
Sem dæmi um þetta má nefna, að starfsfólki í söfnuðum Reykjavíkurprófastsdæmis eystra hefur fækkað um meira en fjórðung frá hruni og m.a. hefur þurft að draga verulega úr barna og æskulýðsstarfi og starfi fyrir aldraða.
7. Er þér ljóst, að niðurskurður sóknargjaldsins hefur leitt til þess, að dregið hefur úr viðhaldi kirkjubygginga og safnaðarheimila, þannig að víða horfir til hreinna vandræða?
Sem dæmi um þetta má nefna þá kirkju sem undirritaður þjónar. Þar þarf að breiða plast yfir altarið í hvert sinn sem von er á rigningu, og til þess hefur komið í einstöku athöfnum, að 8-10 fötur hafi þurft til að taka á móti þaklekanum.
8. Er þér ljóst, að vanefndir ríkisins á kirkjujarðasamkomulaginu, sem er þó í raun undirritaður og löggiltur kaupsamningur, hefur leitt til þess að prestsembættum sem greitt er fyrir hefur fækkað um 21% frá 2008 og að þessi niðurskurður kemur sem hrein viðbót við þá fækkun starfsfólks, sem um er getið í spurningu 6?
Hér er í raun um hreina eignaupptöku að ræða og vanefndir á gerðum samningi, sem fyrr eða síðar hlýtur að reyna á frammi fyrir dómstólum, ef ekki kemur til tafarlausrar leiðréttingar.
9. Er þér ljóst, að það inngrip, sem átt hefur sér stað í innra starf Þjóðkirkjunnar og annara trúfélaga á Íslandi frá árinu 2008, er líklega það mesta sem hefur átt sér stað í Evrópu frá falli járntjaldsins? Leiða má fram rök fyrir því, að ríkisvaldið hafi með eignaupptökum og sjálftöku á félagsgjöldum safnaðanna brotið bæði gegn eignarréttar- og trúfrelsisákvæðum stjórnarskrárinnar.
10. Er þér ljóst, að margir munu horfa til afstöðu þinnar í þessum málum við afgreiðslu fyrirliggjandi fjárlagafrumvarps áður en þeir taka afstöðu til frambjóðenda í þeim prófkjörum sem framundan eru og í komandi Alþingiskosningum?
Ég vona það, kæri þingmaður, að þú hafir það í huga, að Þjóðkirkjan er lang fjölmennustu félagasamtök landsins. Nú er svo komið að langlundargeð margra gagnvart því ofríki sem Þjóðkirkjan og önnur trúfélög hafa verið beitt á síðustu árum, er að bresta. Það verður því örugglega vel fylgst með því, hver afstaða þín verður við afgreiðslu fjárlagafrumvarpsins.
Virðingarfyllst,
Gísli Jónasson, prófastur, Reykjavíkurprófastsdæmi eystra.