að reglum sem gildi um samskipti leik- og grunnskóla og frístundaheimila borgarinnar við trúar- og lífsskoðunarfélög, sem sendar hafa verið til Borgarráðs
Inngangur
Skólastarf í Reykjavík og trúar- og lífsskoðunarmál Mannréttindastefna Reykjavíkurborgar var samþykkt árið 2006. Hún kveður á um að íbúum verði ekki mismunað á forsendum kyns, efnahagsstöðu, uppruna, fötlunar, aldurs eða stjórnmálaskoðana. Undanfarin ár hefur markvisst verið unnið að framförum á sviði mannréttinda hjá borginni og hefur verulegur árangur náðst í auknu kynjajafnrétti, í réttindum samkynhneigðra og málefnum innflytjenda. Mannréttindastefnan kveður einnig á um að borgarbúum skuli ekki mismunað eftir lífs- og trúarskoðunum.
Ekki er ástæða til að gera athugasemdir við þessa málsgrein í inngangi að öðru leyti en því, að þær reglur sem settar eru fram í plagginu virðast þrátt fyrir nokkrar breytingar frá fyrri tillögu enn í veigamiklum atriðum ganga gegn því markmiði sem fram er sett í niðurlagssetningunni. Þ.e. að ekki skuli mismuna borgarbúum eftir lífs- og trúarskoðunum þeirra. Hér er auðvitað um mjög alvarlega athugasemd að ræða og verða því leidd fram ýmis rök fyrir henni í þeim athugasemdum sem gerðar eru við einstaka liði hér að neðan.
Árið 2007 kom út skýrsla Leikskóla- og Menntasviðs Reykjavíkur um samstarf kirkju og skóla. Í hópi skýrsluhöfunda voru fulltrúar frá öllum hlutaðeigandi aðilum; skólastofnunum borgarinnar, Biskupsstofu og Alþjóðahúsi. Ein af megin niðurstöðum hópsins var sú að móta þyrfti skýrar starfsreglur um samskipti trúar- og lífsskoðunarhópa og skóla Reykjavíkurborgar. Mannréttindaráð Reykjavíkur leggur því til að eftirfarandi reglur gildi um samskipti leik- og grunnskóla og frístundaheimila borgarinnar við trúar- og lífsskoðunarfélög:
Eins og þegar hefur verið bent á í athugasemdum undirritaðs við fyrstu tillögu mannréttindaráðs kemur það vissulega fram í nefndri skýrslu starfshópsins, að mikilvægt sé að móta starfsreglur um samstarf leik- og grunnskóla við trúar- og lífsskoðunarhópa og setti hópurinn því fram hugmyndir að slíkum reglum og viðmiðunum (sjá bls.8-9), sem auðvelt ætti að vera að ná víðtækri sátt um, enda munu þær í flestu vera býsna nálægt þeim venjum sem skapast hafa í þessum samskiptum á liðnum árum. Þar er raunar aðeins að finna eitt atriði, sem ekki virðist fá staðist þær viðmiðanir sem almennt eru viðurkenndar og Mannréttindadómstóll Evrópu hefur staðfest með dómum sínum, eins og vikið verður að hér á eftir. (Sjá umfjöllun um lið g þar sem fjallað er um meinta mismunun).
Það vekur þessvegna athygli, að þær tillögur, sem Mannréttindaráð hefur nú sent frá sér eru, þrátt fyrir nokkra endurskoðun frá fyrri tillögum, enn um margt harla ólíkar tillögum starfshópsins. Virðist því ljóst, að ráðið sækir ekki hugmyndir sínar um slíkar reglur nema að litlum hluta til þessarar skýrslu, jafnvel þótt inngangsorðin hér að ofan gætu gefið þeim, sem ekki þekkja til, tilefni til að halda annað. Og um sumt er raunar beinlínis, í tillögum Mannréttindaráðs, gengið þvert gegn þeim tillögum sem starfshópurinn lagði fram.
Einnig hlýtur það að vekja athygli, að Mannréttindaráð virðist ekki hafa haft áhuga á að hafa samráð við um tillögugerðina við marga þeirra aðila, sem málið varðar. Varaformaður ráðsins sagði raunar í útvarpsviðtali í gær, að hún minntist þess ekki, “að einn einasti hósti eða stuna hafi heyrst frá kirkjunnar mönnum um þetta samtal við Mannréttindaráð“. Þykir mér það mjög undarleg staðhæfing, þar sem undirritaður sendi ráðinu 12 blaðsíðna greinargerð með athugasemdum við tillögurnar í nafni Reykjavíkurprófastsdæmanna 15. nóvember sl. Þeirri greinargerð var síðan fylgt eftir með ósk Samstarfsnefndar Reykjavíkurborgar og Reykjavíkurpófastsdæma um samráðsfundi við Mannréttindaráðið, en því erindi var aldrei svarað þrátt fyrir nokkrar ítrekanir.
Að lokum skal það svo nefnt hér í upphafi, að það virðist, þrátt fyrir nokkrar lagfæringar frá fyrri tilögum, enn geta verið álitamál, hvort tillögur Mannréttindaráðs samrýmist gildandi lögum um leik- og grunnskóla og aðrar réttarheimildir sem eiga við um það málefni, sem hér er til umfjöllunar. Virðist því full þörf á því að fá úr því skorið með fullnægjandi hætti hvort með þessum reglum, yrðu þær staðfestar óbreyttar, væri ekki um að ræða óeðlileg og óheimil afskipti af kennslu, námsskrá og öðrum innri málum skólans, sem ekki heyra undir valdsvið sveitarfélagsins.
Tillögur að reglum
a) Hlutverk skóla borgarinnar er að fræða nemendur um ólík trúarbrögð og lífsskoðanir samkvæmt gildandi aðalnámskrá og námsefni.
Ekki er tilefni til að gera athugasemdir við þessa grein, svo framarlega sem reglurnar séu, eins og hér er sagt, í samræmi við námsefni og gildandi aðalnámskrá. Á því virðist hinsvegar, þrátt fyrir nokkrar lagfæringar, enn vera einhver misbrestur eins og bent verður á í umfjölluninni hér að neðan.
b) Trúar- og lífsskoðunarfélög skulu ekki stunda starfsemi sína innan veggja leik- og grunnskóla borgarinnar á skólatíma né heldur á starfstíma frístundaheimila. Þetta á við allar heimsóknir í trúarlegum tilgangi, skemmtidagskrár eða aðrar kynningar tengdar starfi þeirra, sem og dreifingu á boðandi efni. Með boðandi efni er átt við hluti sem gefnir eru eða notaðir sem hluti af trúboði, það er tákngripir, fjölfölduð trúar- og lífsskoðunarrit, bækur, auglýsingar, hljóðrit, prentmyndir og kvikmyndir.
Hér er svo mörgum atriðum og mismunandi hugtökum steypt saman í eina grein, að erfitt er að átta sig á tilgangi hennar og framkvæmd.
Í umræðunni um tillögur Mannréttindaráðs hafa ákveðnir aðilar, m.a. innan ráðsins, tjáð sig varðandi efni fyrstu setningar þessarar greinar með þeim hætti, að ætla mætti að hér sé um stórfellt vandamál að ræða og að sú breyting hafi orðið á síðustu árum, að prestar, eða aðrir fulltrúar trúar- eða lífsskoðunarfélaga séu stöðugt inni á gafli í skólunum og stundi þar margvíslega starfsemi. Mun það samt varla þekkjast, að trúar- og lífskoðunarfélög stundi starfsemi sína innan veggja skólanna á skólatíma, og samkvæmt könnun starfshópsins frá 2007 er sömuleiðis lítið um heimsóknir í grunnskólunum, en eitthvað mun hinsvegar samkvæmt könnuninni vera um heimsóknir í leikskóla. En slíkar heimsóknir falla þá raunar yfirleitt alfarið undir það, sem nánar er skilgreint undir lið c) í tillögum Mannréttindaráðs, en ekki undir það, sem hér er nefnt „heimsóknir í trúarlegum tilgangi“. Skal í því sambandi einnig á það bent, að samkvæmt ítarlegu lögfræðiáliti Dóru Guðmundsdóttur, Cand.jur,LL.M, sem unnið er fyrir Mennta- og menningarmálaráðuneytið og birt á heimasíðu ráðuneytisins, brjóta slíkar heimsóknir hvorki í bága við grunnskólalög, aðalnámsskrá leikskóla né ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu (MSE) (Sjá t.d. bls. 33). Er rétt að halda þessu atriði til haga, þar sem öðru hefur ítrekað verið haldið fram í umræðunni um þessar tillögur.
Með orðalagi þessarar greinar virðist svo einnig vera vikið að því, að í sumum skólum hafa fulltrúar kirkjunnar fengið að koma til að kynna starfið eins og t.d. að auglýsa, að nú hafi barnakórinn hafið starf sitt eða sunnudagaskólinn, 6 til 9 ára starfið, Tíu til tólf ára starfið eða æskulýðsfélagið. Í því sambandi skal þá á það bent, að slíkt er ekki trúarleg boðun og því síður trúarleg iðkun, heldur einfaldlega kynning á félagslegu starfi. Og verði slíkt bannað innan skólans þá hlýtur það að leiða til þess, að jafnframt verði að banna innan skólans alla kynningu aðra á félagslegu starfi, hvaða tegundar sem það svo er. Annað væri brot á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar og ýmsum mannréttindaákvæðum. Reyndar hafa einstakir fulltrúar í Mannréttindaráði tjáð sig með þeim hætti, að kirkjan muni að sjálfsögðu sitja við sama borð og önnur félagstarfsemi er kemur að kynningu til skólabarna, en þær staðhæfingar virðast ekki vera í samræmi við tillöguna eins og hún er hér lögð fram til Borgarráðs.
Minnt skal á að trúfrelsi er fólgið í því að fá að velja. Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna á einmitt að tryggja rétt barna til að velja, félagslega og trúarlega. Ef stöðva á dreifingu upplýsinga frá trúfélögum (kirkjunni) um félagsstarf sitt, ber því einnig að stöðva slíkt frá öllum aðilum öðrum. Og hver er bættari með því? Og því skyldi þá ekki gleymt, að slíkt bann hlyti þá raunar líka að ná til félagsstarfs ÍTR. Annað er hreinlega ekki í boði skuli jafnræðis, jafnréttis og mannréttinda gætt. Með slíku banni væri þá líka verið að taka völdin af nærsamfélaginu og gera skólastjórnendur og foreldra ómynduga, en góð hefð hefur skapast í flestum hverfum borgarinnar fyrir samvinnu þeirra aðila, sem koma að félagsmálum barna og ungmenna og þar með talið kirkju og skóla.
Í þessu sambandi skal það áréttað, að sú skoðun, sem sett hefur verið fram í umræðunni, m.a. af nokkrum talsmönnum Mannréttindaráðs, og sem virðist endurspeglast í þessari grein, að um "grundvallarmun á starfi lífsskoðunarfélags og tómstundastarfi sé að ræða" sem réttlæti mun á því hverjir fái að auglýsa starf sitt, fær ekki staðist. Þetta kemur skýrt fram í mannréttindasáttmálum og hefur verið staðfest í dómum Mannréttindadómstóls Evrópu. (Sjá t.d. 26 gr. Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna, 2. gr. 1. viðauka Mannréttindasáttmála Evrópu, 14. og 29. gr. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og greinargerð með dómi Mannréttindadómstóls Evrópu nr. 7442/29. júní 2007)
Það er því m.ö.o. ljóst, að það væri bæði mannréttindabrot og brot á jafnræðisreglu, að ætla að útiloka aðkomu kirkjunnar að skólanum að þessu leyti, nema þá að aðkoma og kynning allra annarra aðila verði þá bönnuð með sama hætti. Þar erum við þá eins og áður sagði t.d. að tala um íþróttafélög, Rauðakrossinn, Amnesty, skátanna og jafnvel ÍTR. Er það slík dauðhreinsun á sambandi skóla og samfélags sem Mannréttindaráð óskar eftir? Slík „hreinsun“ getur ekki flokkast sem mannréttindi heldur fremur sem þöggun. Og þöggun er einmitt versta tegund innrætingar og í henni gætu vissulega verið fólgin mannréttindabrot. Mannréttindi felast hinsvegar í því, í þessu samhengi, að bjóða uppá verðuga valkosti og tryggja þannig rétt allra barna til að velja, hvort sem er félagslega eða trúarlega. Undan þeirri ábyrgð og þeirri skyldu fær hið opinbera ekki vikið sér. (Sjá t.d. 2. gr. 1. viðauka Mannréttindasáttmála Evrópu, MSE)
Þá virðist orðalagi þessarar greinar einnig augljóslega vera beint gegn afhendingu Gídeonfélagsins á Nýja testamentinu (NT) til skólabarna, þótt NT sé að vísu ekki getið sérstaklega, eins og var í fyrstu drögum að tillögu ráðsins. Gideon félagið hefur dreift NT í grunnskóla í 60 ár, fyrst til 12 ára barna, en úthlutun til 10 ára barna er til komin á sínum tíma, vegna óska frá námstjóra í kristnum fræðum og trúarbragðafræðum, svo hægt væri að nota það til kennslu eins og ráð er fyrir gert í námskrá. Fulltrúar Gídeonsfélagsins eru við þessa afhendingu í kennslustofunni sem gestir skólans og er sem slíkir því ekki í trúboði. Hefur þessa atriðis einmitt verið sérstaklega gætt á síðustu árum. Uppfyllir heimsókn þeirra því öll skilyrði c) liðar í tillögum Mannréttindaráðs og er í fullu samræmi við aðalnámsskrá.
Það virðist svo einnig stundum gleymast í umræðunni hvað þetta varðar, að þótt NT sé vissulega trúarrit, þá er það um leið einnig ein af meginstoðum og sterkustu áhrifavöldum Evrópskrar menningar, þar með talið bókmenntir, myndlist, tónlist, heimspeki o.s.frv. Menningin, hvort sem er íslensk eða vestræn, verður því ekki skilin án þess. Og sömuleiðs virðist það einnig oft hafa gleymst í umræðunni og í undirbúningnum að þessum tillögum Mannréttindaráðs, að NT er einnig skv. námsskrá kennslugagn í kristinfræðikennslunni, eins og líka kemur skýrt fram í áðurnefndu lögfræðiáliti Dóru Guðmundsdóttur (sjá bls. t.d. bls. 23). Það er því ljóst, að ef Gídeonfélagið fær ekki áfram að leggja börnunum til NT, þá hlýtur Reykjavíkurborg sjálf að þurfa að sjá börnunum fyrir þessu námsefni. Annað væri brot á ákvæðum námskrár.
Í þessu sambandi má einnig benda á það, að í ritinu Toledo Guiding Principles on Teaching about Religions and Beliefs in Public Schools, sem gefið var út af Office for Democratic institutions and Human Rights og Organization for security and Co-operation in Europe er meðal annars hvatt til samstarfs menntastofnana og trúar- og lífsskoðanafélaga við gerð námskrár, námsefnis, kynningu á trúarbrögðum og notkunar á kynningarritum frá viðkomandi aðilum, að því gefnu að þau standist fræðilegt mál. Sömuleiðis er lögð áhersla á að trúfélög séu kynnt á forsendum þeirra sjálfra, þ.e. að sú mynd sem dregin er upp af því fyrir hverju þau standa svari til sjálfsskilnings viðkomandi trúfélags. Þá er lögð mikil áhersla á umburðarlyndi milli ólíkra trúar- og lífsskoðanahópa og að mismunur sé sýnilegur, svo hægt sé að temja nemendum virðingu fyrir einstaklingum sem hafa aðra lífsskoðun en þeir sjálfir. Og í því sambandi skal á það bent, að umburðarlyndi lærist ekki í tómarúmi eða með þöggun, eins og gæti orðið afleiðingin af tillögum mannréttindaráðs, yrði þeim hrint í framkvæmd.
Loks skal svo á það bent, að auðvitað er öllum foreldrum frjálst að hafna því að börn þeirra séu viðstödd afhendingu NT, að taka ekki við því eða þá að skila því aftur óski þeir ekki eftir því, við nánari athugun, að börn sín eigi slík rit. Þetta eru mannréttindi þeirra í þessu samhengi, en hins vegar ekki hitt, að þau geti með andstöðu sinni vegna eigin barna hindrað öll önnur börn í því að þiggja NT að gjöf. Þessi grundvallarafstaða til mannréttinda kemur svo skýrt fram í þeim mannréttindasáttmálum sem við íslendingar höfum undirgengist og í túlkunum Mannréttindadómstóls Evrópu á þeim, að það hlýtur að valda undrun, að enn skuli öðru haldið fram í umræðunni hér.
c) Skólastjórnendur grunnskóla geta boðið fulltrúum trúar- eða lífsskoðunarhópa að heimsækja kennslustundir í trúarbragðafræði/lífsleikni sem lið í fræðslu um trú og lífsskoðanir samkvæmt gildandi aðalnámsskrá og námsefni, og skal heimsóknin þá fara fram undir handleiðslu kennara og vera innan ramma námsefnisins.
Um þetta er skýrt kveðið í námskrá og eru því ekki gerðar athugasemdir við þessa grein að öðru leyti en því, að það skal hér ítrekað, sem bent var í í athugasemdum við grein b), að heimsóknir Gideonmanna til afhendingar NT falla einmitt undir þessa grein.
d) Heimsóknir á helgi- og samkomustaði trúar- og lífsskoðunarfélaga á skólatíma grunnskóla skulu eiga sér stað undir handleiðslu kennara sem liður í fræðslu um trú og lífsskoðanir, samkvæmt gildandi lögum og aðalnámsskrá. Þar sem ekki er sérstaklega getið um vettvangsheimsóknir leikskólabarna á helgi- og samkomustaði trúar- og lífsskoðunarfélaga sem lið í fræðslu um trú og lífsskoðanir í aðalnámskrá leikskóla er eðlilegt að miða fjölda slíkra heimsókna við það sem fram kemur í aðalnámskrá grunnskóla til að gæta samræmis milli skólastiga.
Um slíkar heimsóknir er fjallað í námskrá og námsefni grunnskólans og þar gert ráð fyrir slíkum vettvangsferðum í kynningarskyni til aukins skilnings og þekkingar. Er þetta í fullu samræmi við mannréttindasáttmála eins og skýrt kemur fram í áðurnefndu lögfræðiáliti Dóru Guðmundsdóttur, en þar segir m.a. á bls. 32: ”Þá er ekkert sem bannar að nemendur fari í heimsókn á staði þar sem trúariðkun fer fram, ef um er að ræða þátt í trúarbragðafræðslu eða öðru skólastarfi samkvæmt námskrá. Það verður því talið að það brjóti ekki gegn ákvæði 2. gr. 1. samningsviðauka MSE að kirkjuheimsóknir séu skipulagðar, t.d. síðasta dag fyrir jól fyrir þá sem það vilja.” ....... ” Þá er mikilvægt að slíkar fyrirætlanir komi fram í skólanámskrá og dagatali og rétt væri að skóli tilkynnti sérstaklega um fyrirhugaðar heimsóknir, með það fyrir augum að gefa þeim sem ekki kjósa að taka þátt í heimsókninni færi á undanþágu, án skýringa. Þá er mikilvægt að starfsfólk skóla sé tiltækt og námsefni eða annað skipulag tiltækt fyrir þá sem ekki kjósa að fara í kirkju.”
e) Þess verði gætt við allar heimsóknir til og frá grunnskóla vegna fræðslu um trú og lífsskoðanir að nemendur fylgist með en séu ekki þátttakendur í helgisiðum og athöfnum, og að þær séu ekki vettvangur fyrir innrætingu eða dreifingu á boðandi efni.
Um slíkar heimsóknir hefur þegar verið fjallað í grein d) og eins og þar kom fram er fjallað um þær í námskrá og námsefni grunnskólans, en þar er gert ráð fyrir slíkum vettvangsferðum í kynningarskyni til aukins skilnings og þekkingar. Er þetta enda í fullu samræmi við alþjóðlega mannréttindasáttmála eins og skýrt kemur fram í lögfræðiáliti Dóru Guðmundsdóttur, sem þegar hefur verið bent á, en þar segir m.a. á bls. 32: ”Þá er ekkert sem bannar að nemendur fari í heimsókn á staði þar sem trúariðkun fer fram, ef um er að ræða þátt í trúarbragðafræðslu eða öðru skólastarfi samkvæmt námskrá. Það verður því talið að það brjóti ekki gegn ákvæði 2. gr. 1. samningsviðauka MSE að kirkjuheimsóknir séu skipulagðar, t.d. síðasta dag fyrir jól fyrir þá sem það vilja.”
Virðist það mikið vantraust á störfum kennara, að þeim sé ekki treyst til að sinna starfi sínu í samræmi við þau lög og námskrár sem gilda um grunnskólann, eins og þessi grein bendir til. Og sömuleiðis virðist hér gæta mikils misskilnings á eðli slíkra vettvangsferða. Þar eru jú aðeins þau börn þátttakendur, sem hafa fengið leyfi foreldra til ferðarinnar. Það er miður ef Mannréttindaráð getur hvorki treyst kennurum né foreldrum til að bera ábyrgð á börnunum. Og sé með því orðalagi, sem hér er notað, að þess sé gætt að börnin séu ekki ”þátttakendur í athöfnum”, átt við það, svo dæmi sé tekið, að þau megi ekki taka þátt í söng, þá er ráðið vissulega farið að teygja sig út fyrir valdsvið sitt og beinlínis tekið að ritskoða námskrána.
f) Samþætting húsnæðis og starfsemi stofnana sem vinna með börn á vegum Reykjavíkurborgar við starfsemi trúar- og lífsskoðunarfélaga eigi sér ekki stað á skólatíma.
Með þessari grein virðist, sé hún rétt skilin, sem brotið sé á foreldraréttinum. En hér er orðalag ekki skýrt og óljóst hvað hún feli í sér. Mega börn á frístundaheimilum borgarinnar ekki taka þátt í kirkjulegustarfi, jafnvel þótt það sé með leyfi foreldranna. Réttur foreldra til að börn þeirra séu alin upp í samræmi við eigin lífsskoðanir er ótvíræður og tryggður í mannréttindasáttmálum. Og sá réttur gildir um öll börn og alla foreldra. Með því að banna það, eins og hér virðist gert, að börn á frístundaheimilum borgarinnar megi, með leyfi foreldra sinna, taka þátt í kirkjulegu starfi á skólatíma, þ.e. á starfstíma heimilanna, er brotið á þessum rétti. Með slíkum tillögum er jafnræðisreglan einnig brotin, nema þá að það sé ætlunin að banna á sama tíma allt samstarf við utanaðkomandi aðila eins og skáta, íþróttafélög, tónlistar- og/eða dansskóla o.s.frv. Því eins og þegar hefur verið bent á, (Sjá umfjöllun um grein b), þá fær sú skoðun ekki staðist, sem sett hefur verið fram í umræðunni um þessar tillögur og sem virðist endurspeglast í þessari grein, "að um grundvallarmun á starfi lífsskoðunarfélags og tómstundastarfi sé að ræða". Það fær m.ö.o. ekki staðist, að reyna þannig að ”prívatísera” trúarlegt félagsstarf og leitast við að ýta því út af hinu opinbera sviði. Má í þessu sambandi benda á að Evrópuráðið hefur einmitt að undanförnu ítrekað fjallað um þetta atriði og bent á mikilvægi þess, að hið trúarlega hafi eðlilega aðkomu að hinu „opinbera rými“ þjóðfélagsins. Og eins og þegar hefur verið bent á, kemur þetta atriði einnig skýrt fram í mannréttindasáttmálum og hefur verið staðfest í dómum Mannréttindadómstóls Evrópu. (Sjá t.d. 26 gr. Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðuþjóðanna, 2. gr. 1. viðauka Mannréttindasáttmála Evrópu, 14. og 29. gr. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og greinargerð með dómi mannréttindadómstóls Evrópu nr. 7442/29. júní 2007). Það er því m.ö.o. ljóst, að það væri bæði mannréttindabrot og brot á jafnræðisreglu, að ætla að útiloka aðkomu kirkjunnar að frístundaheimilunum á starfstíma þeirra, nema þá að aðkoma og kynning allra annarra aðila verði þá jafnframt bönnuð. Og hið sama gildir, ef þessari grein er ætlað að koma í veg fyrir samstarfsverkefni eins og t.d. barnakóra, sem nokkuð er um að séu samstarfsverkefni kirkju og skóla, en slíkt samstarf hefur yfirleitt verið vinsælt, þar sem það hefur verið reynt, og vakið mikla ánægju. Enda hefur samstarf af þessum toga styrkt nærsamfélgið í hverfum borgarinnar. Börnin taka að sjálfsögðu aðeins þátt í slíku samstarfi með leyfi foreldra og væri það því mikil forræðishyggja, og raunar hreint ofríki og brot á foreldraréttinum, ef banna ætti að slíkt starf megi fara fram í húsnæði skólans. En þess eru einmitt dæmi frá síðast vetri, að slíkt hafi verið gert, og þá með tilvísun í tillögu Mannréttindaráðs og olli það miklum vonbrigðum í viðkomandi hverfi.
g) Skólayfirvöld beini því til trúar- og lífsskoðunarfélaga að þau skipuleggi fermingarfræðslu og barnastarf með það að leiðarljósi að það hvorki trufli lögbundið skólastarf um skemmri eða lengri tíma né leiði til mismununar nemenda utan tiltekinna trúar- og lífsskoðunarfélaga.
Í umræðum um tillögu Mannréttindaráðs hefur því verið haldið fram, að þátttaka fermingarbarna í fræðsluferðum kirkjunnar setji skólastarf úr skorðum a.m.k. 2 daga á hverju hausti vegna fermingarfræðslu kirkjunnar. Það er hinsvegar hvorki á valdi Mannréttindaráðs né skólayfirvalda að hafa afskipti af þátttöku barnanna í slíkum fræðsluferðum, enda hlýtur það að vera réttur foreldra að fá frí frá skóla fyrir börn sín innan eðlilegra marka vegna þátttöku í ýmiskonar félagsstarfi og hópferðum. Og gildir þá einu, skv. jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar, hvort ástæðan er þátttaka í íþróttakeppnum, tónlistarstarfi, fermingarfræðslu eða öðru tómstunda eða félagsstarfi. Það er hinsvegar skýlaus krafa til skólans að hann haldi uppi eðlilegu skólastarfi fyrir þau börn sem ekki taka þátt í slíkum ferðum. Um þetta segir Dóra Guðmundsdóttir m.a. í lögfræðiáliti sínu á bls. 31: ”Af því leiðir að það er ekki í samræmi við lögin ef kennsla fellur niður vegna fjarveru mikils hluta nemenda og verður að hafa það í huga, t.a.m. ef undanþágur eru veittar frá skólasókn vegna fermingarfræðslu. Hins vegar verður að telja að skólastjóri hafi heimild til þess, á grundvelli 15. gr. laga nr. 91/2008 að veita nemendum tímabundna undanþágu frá námi, ef eftir því er óskað, skv. 4. mgr. 15. gr. og gildar ástæður eru taldar til þess. Því verður ekki talið að ákvæði grunnskólalaga, annarra laga, þ.m.t. laga nr. 62/1994 um Mannréttindasáttmála Evrópu, stjórnarskrár eða þjóðréttarskuldbindinga leiði til þess að óheimilt sé að veita tímabundið leyfi frá skólasókn til að sækja fermingarfræðslu. Þó verður að gera þá kröfu, í samræmi við 2. gr. 1. samningsviðauka MSE og 14. gr. MSE, sbr. lög nr. 64/1992, að gætt sé að því að sambærilegar undanþágur séu veittar öðrum, í því tilviki að um annars konar trúarlega fræðslu, eða sambærilega fræðslu (t.a.m. vegna borgaralegrar fermingar) sé að ræða og farið sé fram á það.”
Væri því í ljósi þessa e.t.v. eðlilegra að orðalag þessarar greinar fjallaði um þessar skyldur skólans.
Vegna þess orðalags í niðurlagi greinarinnar, að starf trúar- og lífsskoðunarfélaga megi ekki leiða til ”mismununar nemenda utan tiltekinna trúar- og lífsskoðunarfélaga” skal í það bent, að það eru ekki gild rök, sem stundum hefur verið haldið fram, að það sé "mannréttindamál", að ekki megi vera "aðgreining" í skólastarfi, með því að boðið sé uppá eitthvað það starf, sem öll börn geti ekki tekið þátt í. Eða leyfi veitt fyrir þátttöku í starfi sem öll börnin taka ekki þátt í. Slíkur málflutningur fær einfaldlega ekki staðist hefðbundnar túlkanir á mannréttindahugtakinu eins og staðfest hefur verið í dómum Mannréttindadómstólsins.
Því er m.ö.o. hafnað í allri umfjöllun um mannréttindi, að það geti talist brot á mannréttindum að börn séu tekin út úr hópnum þegar meirihlutinn tekur þátt í einhverju á vegum skólans, sem ekki samræmist lífsskoðun þeirra. Það eru svo hinsvegar á móti jafn skýr mannréttindi þessara barna, að þau séu ekki neydd til þátttöku heldur sé þeim séð fyrir verðugum valkosti. Þessi grundvallarafstaða varðandi þetta atriði kemur t.d. mjög skýrt fram í dómi Mannréttindadómstólsins í máli nr. 7442/29. júní 2007, þar sem norska ríkið var dæmt fyrir það að ætla að setja mjög þröngar skorður við því að börn gætu verið undanþegin fræðslu í trúarbragðafræðum og fyrir það að gæta ekki nógu vel að því að bjóða þeim verðuga valkosti sem óskuðu slíkrar undanþágu. Þeim málsrökum kærenda, að það væri mannréttindabrot að börn þeirra væru þannig aðgreind frá hópnum og þar með ”skilin útundan” eða ”mismunað”, var hinsvegar vísað frá. Enda er það grundvallaratriði allra mannréttinda, eins og áður er getið, að valfrelsi sé tryggt.
Það er hinsvegar, eins og áður sagði, ótvíræð skylda opinberra aðila, að sjá þeim börnum, sem ekki geta af einhverjum ástæðum tekið þátt í einhverjum þáttum skólastarfsins, fyrir verðugum valkostum. En slíkt getur hinsvegar aldrei talist "mismunun" eða brot á mannréttindum sbr. áður tilvitnaðan dóm.
h) Þær stofnanir borgarinnar sem hafa starfandi áfallaráð tryggi að samráð verði haft við foreldra/forráðamenn þeirra sem áfallið snertir áður en fagaðilar eru fengnir til stuðnings. Í nærsamfélagi leik- og grunnskóla getur verið um að ræða sérfræðinga, fulltrúa trúar- eða lífsskoðunarfélaga eða aðra fagaðila. Helgistundir sem tengjast viðbrögðum við áfalli skulu fara fram utan skólatíma.
Það skal þakkað, að innihaldi og orðalagi þessarar greinar hefur verið mikið breytt, og það til batnaðar, frá fyrri tillögu Mannréttindaráðs. Einu athugasemdirnar sem ég vil gera varðandi núverandi orðalag snúa að lokasetningunni. Tel ég að í henni sé fólgin ákveðin forræðishyggja og jafnvel vantraust á þeim skólastjórnendum, sem þó eiga að bera ábyrgðina á skólastarfinu og þar með þá einnig viðbrögðum skólans í erfiðum aðstæðum, þar sem oft þarf að bregðast skjótt við útfrá þekkingu þeirra á nærumhverfinu. Í því samhengi getur það verið hreint skeytingarleysi og jafnvel mannréttindabrot, að meina alfarið aðstandendum og börnum þeirra, að fá að taka þátt í helgistund á skólatíma, sé þess óskað. Betra væri að kveða á um það, að slíkar helgistundir skuli að öllu jöfnu fara fram utan skólatíma.
i) Sígildir söngvar, dansar, leikir og handíðir sem teljast hluti af gamalgrónum hátíðum og frídögum þjóðarinnar halda sessi sínum í árstíðabundnum skemmtunum og starfi frístundaheimila, leik- og grunnskóla. Jólasálmar og helgileikir tengdir jólum falla hér undir.
Það skal þakkað að Mannréttindaráð gerir sér grein fyrir því, að margvísleg listsköpun getur með engu móti flokkast sem trúariðkun eða trúaruppeldi jafnvel þótt hún tengist trúarlegum hátíðum eða táknum. Hér er um kennslufræðilegt atriði að ræða, þ.e. að listsköpun er til að auka þekkingu og skilning á átrúnaði sem verið er að uppfræða um, og gildir þá einu hvort um t.d. kristni, búddisma, hindúisma eða íslam er að ræða. Öll trúarbrögð eru auðug af myndrænni tjáningu og táknum og sjálfsagt að nota þau til listsköpunar, um leið og börnunum er kennt að þekkja þau og lesa úr þeim. Þetta er almennt viðurkennt af þeim kennslu-fræðingum, sem um þessi mál fjalla. Og um þessi mál er raunar fjallað í námskrám, þannig að þessi grein er í raun að mestu óþörf. En sé það talið nauðsynlegt að hún sé höfð með í þessum reglum, skal það þó þakkað, að nú eru þó a.m.k. tekin af öll tvímæli um það, að jólasálmar og helgileikir tengdir jólum falli hér undir. Það vekur þó samt upp þá spurningu, hvort hið sama eigi þá ekki við um aðrar „gamalgrónar hátíðir“?
Niðurlag
Til grundvallar þessum reglum liggur sá vilji Mannréttindaráðs að tryggja rétt barna til þátttöku í skólastarfi óháð þeirri trúar- og lífsskoðun sem þau alast upp við. Ekki skal góður vilji Mannréttindaráðs í þessa veru dreginn í efa, en í ljósi þeirra athugasemda, sem hér hafa verið settar fram hlýt ég þó að benda á að í mörgum greinum hefur ráðinu ekki tekist þetta ætlunarverk sitt sem skyldi, með þessum tillögum sínum, og á stundum jafnvel lagt til hluti sem beinlínis vinna gegn þessu markmiði. Hlýt ég því að hvetja Borgarráð til að skoða þessar tillögur vel og taka tillit til þeirra athugasemda sem komið hafa fram þannig að friður megi takast um þær reglur sem settar verða.
Upplýst fræðsla um kristna trú, trúarbrögð heimsins, lífsskoðanir, siðfræði, heimspeki og íslenska menningu, er mikilvæg í öllu starfi skóla borgarinnar. Trúarleg innræting og boðun tiltekinna lífsskoðana á þar ekki heima. Það er á hendi foreldra að ala börn sín upp í þeirri trúar- og lífsskoðun sem þeir kjósa.
Um þetta er jú skýrt kveðið í námskrá og grunnskólalögum. Eru því ekki gerðar aðrar athugasemdir við þessa málsgrein en þær, að hér mætti bæta því við, að skv. 2. gr. 1. samningsviðauka Mannréttindasáttmála Evrópu er lögð sú skylda á herðar hinu opinbera, í öllum ráðstöfunum er miða að menntun, að “virða rétt foreldra til þess að tryggja það að slík menntun ..... sé í samræmi við trúar- og lífsskoðanir þeirra.” Og að þetta ákvæði varðar ekki bara mannréttindi minnihlutans, eins og sumir virðast halda, heldur líka, og ekkert síður réttindi meirihlutans.
Um það munu starfsmenn Reykjavíkur standa vörð samkvæmt mannréttindastefnu borgarinnar og þeim mannréttindasáttmálum sem Ísland hefur undirgengist. Hér er ekki öðru við að bæta, en að ég óska þess, að starfsmönnum Reykjavíkur megi takast þetta sem allra best, enda munu þessar tillögur þá væntanlega taka þeim breytingum, sem hér hefur verið bent á, í samræmi við þá mannréttindasáttmála sem Ísland hefur undirgengist.
Að lokum óska ég ykkur Guðs blessunar við þá vinnu og í öllum ykkar störfum.
Virðingarfyllst, Gísli Jónasson, prófastur, Reykjavíkurprófastsdæmi eystra.