Engar sögur
Eitt af því sem merk erlend fræðikona á sviði guðfræði og
prédikunarfræða sagði við okkur á námskeiði hér í haust, var að við
skyldum ekki segja sögur. En það er eitt af því sem margir prestar
einmitt gera oft, að segja sögur úr eigin lífi eða annars staðar frá,
sem þeim finnst geti varpað ljósi á merkingu þess boðskapar sem þeim er
ætlað að bera fram. Meining hennar var sú að ritningin sjálf væri meiri
en nægur brunnur sagna sem mikilvægt væri að segja og dvelja við.
Ástríða fyrir tónlist
Samt ætla ég að brjóta þessa reglu einmitt nú og byrja á því að segja ykkur sögu:
Þegar ég var prestur norður í landi fyrir nokkuð löngu síðan þá
jarðsöng ég einu sinni sem oftar gamlan mann. Þessi gamli maður hafði
litla menntun fengið og unnið sem verkamaður á lægstu launum alla sína
tíð. En ástríða hans var tónlist. Hann hafði yndi af því að hlusta á
tónlist og hann safnaði hljómplötum, mestmegnis var það sígild tónlist
af ýmsu tagi, enginn í hans byggðarlagi átti annað eins safn. Sjálfur
spilaði hann ekki á neitt hljóðfæri, vissi ekkert um tónfræði og aldrei
heyrðist hann syngja, menn vildu jafnvel meina að hann hafi verið alveg
laglaus. Þó var þetta ást hans og yndi að hlýða á fallega tónlist.
Jesús talar við fræðimenn
Nú er kannski spurningin sem vonandi einhver ykkar sem hér eru stödd
spyrjið ykkur, hvað hefur þessi saga með texta dagsins að gera?
Jesú er í þessu guðspjalli svo sem eins og svo oft áður að skiptast á
skoðunum við trúmenn síns samfélags þá sem þekktu fræðin framar öðrum,
þeir kunnu að lesa og þekktu ritin sem þá voru til og við köllum gamla
testamennti. Þeir voru sannarlega fróðir og lesnir og vissu ótal margt
en vera má að þeir hafi líka verið nokkuð fastir í forminu og ekki
hrifnir af því að gera miklar breytingar á þeirri aðferð sem þeir höfðu
lært og lifað og hrærst í. Ekki nóg með það, þessi aðferð og þekking
færði þeim virðingu og status, nokkuð sem þeim þeir voru ekki hrifnir af
að sleppa. Jesús gerir sér far um að ögra þeim og jafnvel finnst mér
ekki ólíkt því að hann sé aðeins að stríða þeim. Jesús er sjálfur vel
lesinn í fræðunum og getur því vel mætt þeim og tekist á við þá á þeirra
forsendum um leið og hann kynnir nýja nálgun, nýja hugsun, nýjan
útgangspunkt. Ekki ólíkt því sem var með Lúter löngu síðar, hann var
lærður og vel lesinn og leiddi sína byltingu með fræðin að vopni. Um
leið og hann var að kynna afturhvarf til upprunans en samt á nýjum
forsendum í nýjum aðstæðum.
Opinn hugur eða for - dómar
Jesú segir við þá, fræðimennina, það sem þið getið ekki séð það blasir
við þeim sem ekkert hafa lært, það er þeim opinberað, þeir hafa ekki
fyrirfram forritað huga sinn og lokað á nýja sýn. Þeir hlusta opinmynnti
og tengja við líf sitt og reynslu. Skynja að það sem sagt er er satt.
Það eru fleiri orð frá Jesú en þessi sem hér voru lesin sem guðspjall
sem kallast á við svipaða hugsun. Jesú segir í hinum frægu orðum sem
lesin eru við hverja barnaskírn að nema þið verði eins og börn þá munið
þið aldrei komast inn í Guðs ríkið. Hver er munur á barni og
fullorðnum? Hann er auðvitað margvíslegur en kannski mestur sá að barnið
hefur ekki enn komið sér upp sambærilegum gagnagrunni eða við getum
líka kallað það þekkingu og þau sem lifað hafa lengur. Um leið hafa þau
ekki heldur sömu fordóma og þeir sem eldri eru, þeim hefur enn ekki
verið sagt hvernig eigi að hugsa og hvernig eigi að meðtaka, hvað sé við
hæfi og hvað ekki, hvað sé leyfilegt, hvað sé skynsamlegt, hvað sé í
samræmi við það sem alltaf hefur verið gert og hvað ekki. En þau hafa
skynfæri sín í góðu lagi og hugsun þeirra er skýr og fersk. Þau skynja
og bregðast við ást og kærleika foreldranna þau sperra eyrun þegar þau
heyra fagra hljóma.
„Móðir vor!
Textinn úr gamla testamentinu dregur upp vonarríka mynd af guðsríki,
tilvist þar sem vilji Guðs fær að ráða. Hin nýja Jerúsalem. Hvernig er
henn lýst? Henni er líst út frá barninu. Barnið sem hvílir við barm
móður sinnar, teygar næringarríka mjólkina úr brjóstum hennar. Barnið
sem móðirin ber með sér á mjöðminni og hossar því á hnjám sínum svo það
hlær og hjalar. Guðsmyndin er þarna hin kærleiksríka móðir er hugar að
öllum þörfum barnsins síns svo það megi vaxa upp í öryggi.
Eru fræði fyrirstaða eða forsenda?
Stundum virðist þess gæta að hin tilvitnuðu orð Jesú í guðspjallinu séu
túlkuð á þann veg að hann sé þarna að gera lítið úr fræðimennsku og
þekkingarleit með því að segja að smælingjar og börn muni fyrr kynnast
guðsríkinu en þeir. Það er fremur sú aðferð og jafnvel hugsunarháttur
sem margir tileinka sér að aðeins ein eða fáar vinnuaðferðir séu gildar,
þ.e. það sem kallað er fordómar. Að gefa sér fyrirfram hvaða leiðir er
hægt að fara. Þetta er skiljanlegt, þú gengur inní stóran heim tiltekina
fræða, mátt hafa þig allan við að læra og tileinka þér allt það sem þar
þarf að nota til að geta haldið áfram. Þessi leið verður þannig þinn
stóri sannleikur og að einhverju leiti forsenda framfara og árangurs en
um leið setur það skapandi hugsun skorður. Ég hef heyrt að oft komi
nýjar uppgötvanir fram á mörkum fræðigreina. Sömuleiðis hef ég lesið
greinar sem skýra hina miklu grósku í heimi tónlistar hér á landi
einmitt með því að sökum þess hve sá heimur er smár þá sé hann ekki með
sama hætti hólfaður niður, líkt og víða er í hinum stóra heimi. Fólk með
ólíka þekkingu og nálgun fer að vinna saman og eitthvað nýtt og
frumlegt lítur dagsins ljós.
Sagnfræðingur á sauðskinnsskóm
Jesú er sannarlega ekki að gera lítið úr fræðum og þekkingu, það sem
hann er að benda á er það að trúin er á annari bylgjulengd, forsenda
hennar er ekki þekking eða söguleg fræði. Engum dytti í hug að
sagnfræðingur sem stúderar sögu Íslands á fyrri öldum ætti að fara að
ganga í sauðskinnsskóm. Samt halda margir að sá sem tekur trú sína
alvarlega hljóti jafnframt að halda því fram að jörðin sé flöt. Með
öðrum orðum að sú þekking sem til var á því langa tímabili sem rit
biblíunnar voru skrifuð sé hluti af trúnni að með því að meðtaka trúna
hljóti maður um leið að afneita nýrri þekkingu á veröldinni. Þessari
aðferð hafa andstæðingar trúarinnar beitt blygðunarlaust og með góðum
árangri, því hvaða hugsandi maður vill láta tengja sig við úrelta hugsun
og þekkingu? Þetta eru fordómar nútímans sem torvelda leið margra til
Guðs.
Guð og maður
Það þarf engan fræðimann til þess að elska og njóta fagurra tóna. En
verður það ekki einmitt að vera þessi grundvallarástríða sem dregur og
skapar löngun til þess að stíga sjálfur inn í þennan heim og öðlast
færni og þekkingu með þrotlausri vinnu?
Sömuleiðis þá þarf engann fræðimann til þess að meðtaka hið eilífa ljós
trúarinnar, það ljós sem nærir kærleika og öryggiskend. Þetta undur sem
aldrei verður endanlega höndlað og er því túlkað með táknum. Líkt og
því sem hér var notað og dregið upp af hinni elskandi móður. Það er
þetta persónulega, milliliðalausa, einstaka og eiginlega mystíska
samband mannsins við Guð sinn sem öllu skiptir sem upphafspunktur hins
trúaða. Þetta sem Lúter lagði svo mikla áherslu á og var hans mikla
uppgötvun.
Sömuleiðis sjáum við þessa aðferð í texta opinberunarbókarinnar þar sem
dregnar eru upp litríkar, óræðar myndir með orðum, myndir sem túlka von
og gleði, gleði og kærleika sem enginn talnaleikur nær að spilla. Þar
sem söfnuðurinn stendur við hið logandi glerhaf og syngur guði lof og
leikur undir á hörpur. Glerið er brothætt eins og lífið sjálft en orð
Guðs varir. Hinn eini sanni tónn er þar fundinn og hann hljómar að
eilífu.