Fjölskyldumessa með sunnudagaskóla, Guðspjall Matt
22:29,33-40
Jesús svaraði þeim: „Þið villist því að þið þekkið ekki
ritningarnar né mátt Guðs. En mannfjöldinn hlýddi á og undraðist mjög
kenningu hans.
Hið æðsta boðorð
Þegar farísear heyrðu að Jesús hafði gert saddúkea orðlausa
komu þeir saman. Og einn þeirra, sem var lögvitringur, vildi reyna hann og
spurði: „Meistari, hvert er hið æðsta boðorð í lögmálinu?“Jesús svaraði
honum: „Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni
og öllum huga þínum. Þetta er hið æðsta og fremsta boðorð. Annað er
hliðstætt þessu: Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig. Á þessum
tveimur boðorðum hvílir allt lögmálið og spámennirnir.“
Náð
sé með yður og friður frá Guði vorum og Drottni Jesú Kristi.
Þið villist því þið
þekkið ekki ritningarnar né mátt Guðs.. sagði Jesús.. Það er satt.. Við sáum í
myndinni um Fríðu frænku að Filippus skildi ekki hvað hann var að lesa.. en það
má segja að Biblían sé eins og GPS tæki nútímans.. Hún leiðir okkur réttu
leiðina.. Það er ekki allt auðskilið í Biblíunni, þess vegna þurfum við oft að
fá aðra til að útskýra efnið fyrir okkur.. Guðspjöllin í NT með biblíusögunum eru
auðskiljanleg og best að byrja að lesa þau..
Biblían okkar, eins og hún er
uppsett í dag, er mjög handhæg til leitar.. Henni er skipt niður í kafla og
köflum skipt í vers.. þ.e. minni einingar.. en hún var ekki skrifuð þannig í
upphafi. Kaflaskiptingin kom snemma á 13.öld og versin voru númeruð um miðja
16.öld sem sagt eftir siðbótina.. og þessi skipting hefur haldist fram á okkar
dag.. Síðan hefur tæknin með sínum leitarforritum og öpp-um, gert þetta enn
auðveldara.. og má því segja að nú sé Biblían aðgengilegri en nokkru sinni
fyrr.. Það er samt þannig að þegar við leitum að einhverju.. og til þess að
okkur gagnist leitin, verðum við að vita að hverju við ætlum að
leita.. við þurfum að hafa grunnþekkingu á málefninu.. Við þekkjum það þegar
við googlum að við þurfum að nota réttu leitarorðin..
Eitt þekktasta efni Biblíunnar er úr GT, það er sagan
um Móse og boðorðin.. og frásögnin staðfestir að þau séu tíu.. Í Biblíunni
stendur: Drottinn birti ykkur sáttmála sinn sem hann bauð ykkur að
fylgja, boðorðin tíu. Hann skráði þau á tvær steintöflur..
Boðorðunum má skipta í tvo hluta, fyrri 5 fjalla um að elska og virða
Guð en seinni 5 eru samfélagsreglur eða ábending um að elska og virða
náungann.. og sú skipting er einmitt í anda Jesú.. og er það sem við köllum
tvöfalda kærleiksboðorðið.. að elska Guð og elska náungann..
Ég heyrði einu sinni trúboða segja frá heiðnu samfélagi í Kenía í Afríku.. Þegar
hann kom til starfa þekkti enginn Guð eða Jesú.. Þau trúðu á stokka og steina og
galdramaðurinn hafði mikil áhrif á allar trúar-athafnir..
Samfélagið hélt öll boðorðin þó enginn hefði heyrt um þau fyrr..
Fólkið elskaði sinn heiðna guð, heiðraði foreldra sína, og hélt samfélagsreglurnar,
þú skalt ekki morð fremja, drýgja hór, stela, bera ljúgvitni eða girnast eigur
annarra.. Allt þetta var haft í heiðri innan samfélagsins.. EN.. færu menn um
miðja nótt í næsta þorp og drápu, nauðguðu, stálu og brenndu húsin þeirra.. þá
voru þeir hetjur.
Það var aðeins í þeirra þorpi, sem allir voru
bræður og systur.. Það sem kristin trú kenndi þeim síðan.. var, að allur
heimurinn er í raun.. eitt þorp.. og að við erum öll systkini.. þurfum
að hjálpast að, virða eigur annarra, styðja hvort annað í áföllum, hafa samúð
og geta glaðst með náunganum þó við þekkjum hann ekki neitt..
Þessi saga kennir okkur að síðari hluti boðorða Guðs eru
nauðsynleg í öllum samfélögum til að menn geti lifað í sátt og samlyndi.. því
eins og ég sagði ykkur í síðustu messu þá setjum við sjálf, líka alls
kyns reglur til að auka öryggi og hafa FRIÐ..
Já, Jesús var spurður: „Hvert er æðst allra
boðorða?“ Jesús svaraði: „Æðst er þetta: þú skalt elska Drottin, Guð þinn, af
öllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum huga þínum og öllum mætti þínum.
Annað er þetta: Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig. Ekkert boðorð
annað er þessum meira.“ Við köllum þessi boðorð, tvöfalda kærleiksboðorðið..
Jesús segir að við eigum að elska Guð MEIRA en okkur sjálf og náungann EINS og
okkur sjálf.. Viðmiðið erum við sjálf.. og þess vegna gott að spurja okkur.. Getum
við sett Guð í 1.sæti?.. og getum við alltaf sett okkur í spor annarra?.. Það
að elska náungann er oft erfitt.. að ég tala nú ekki um.. þegar það bætist við
að við eigum líka að elska óvini okkar.. þ.e. við eigum ekki að bera
hatur til neins.. Guð er kærleikur.. hann elskar okkur öll ! …. Hvernig fer
hann að því að elska okkur öll.. þegar við eigum svona erfitt með að fara eftir
þessum reglum..
Jú hann sagði í GT að hann hvorki horfir á
okkur eða dæmir okkur eftir útliti.. hann horfir heldur ekki á mistökin
sem við gerum.. hann horfir á hjartað, á trú okkar og það sem við viljum
raunverulega gera.. en gerum samt ekki eins og Páll postuli skrifaði..
Páll vissi hvað það er erfitt að ætla alltaf að gera rétt og það sem er gott
bæði fyrir okkur sjálf og aðra.. Hann skrifaði: Hið góða, sem ég vil, geri ég ekki.. en hið vonda, sem ég vil
ekki, það geri ég.. Páll er ekki bara að tala um afbrot.. hann er að tala
um það þegar við ætlum að taka okkur á.. t.d. að hætta að blóta, reykja,
drekka, borða nammi eða fara fyrr að sofa.. Páll er að tala um atriði sem ættu
að vera okkur til góðs.. en svo erum við ekki nógu staðföst.. og við brjótum
regluna sem við vorum að búa til.. og finnst við vera vonlaus..
Guð veit hvaða freistingar við búum við.. og hann getur
gefið okkur styrk, við þurfum bara að biðja um hann.. Bænin er sterkasta vopnið
sem við eigum.. þegar við biðjum.. þá biðjum við, vegna þess að við trúum á
Guð, trúum að hann heyri bænina, trúum að hann gefi okkur styrk
og trúum því að hann leiði okkur réttu leiðina..
Því skiptir öllu máli að hafa trúna í hjartanu..
trúin er fjársjóður.. Jesús er fjársjóðurinn..
Guð vill fyrst og fremst að menn trúi á
hann og þjóni honum af öllu hjarta.. og þjónustan felst í því að elska Guð og
elska náungann.. já, aftur.. þjónustan er tvöfalda kærleiksboðorðið..
Guð sendi son sinn Jesús, með
friðarboðskap.. og heimurinn væri svo sannarlega betri ef öllum tækist að lifa
í friði.. Munum þetta.. Guð vill ekki að neinn glatist.. og núna lifum við í loforði Guðs.. þ.e. Guð hefur lofað því að
fyrir trúna á Jesú erum við börnin hans..
Dýrð sé Guði, föður, syni og heilögum anda. Svo sem
var í upphafi er og verður um aldir alda. Amen..