Landsmót Æskulýðssamband þjóðkirkjunnar sem var haldið um helgina 28. október til 30. tókst rosalega vel með 500 unglingum. Landsmótið var með yfirskriftina ,,Hjörtu úr gulli“, en hvaðan komu þessi orð?
Á mótinu var Japan mikið í fókus. Unglingar tóku þátt í ýmsum hópastarfum sem tengd voru japanskri menningu eins og t.d. ,,Sushi“, ,,Manga(teiknamyndum)“ eða ,,Japanskri tísku“. Markmiðið var söfnun fyrir japönskum börnum sem eiga í erfiðleikum vegna jarðskjálftanna og flóðbylgnanna í mars sl. en unga fólkið safnaði dósum og kallaði eftir samskotum í bænum.
1.120 börn yngri 20 ára misstu annað foreldri eða bæði, og helmingur þeirra eru 7 til 15 ára í aldri. Mikið fleiri þjást af áfallastreituröskun. Tvennt blasir við í aðstæðum barna í hamfarasvæðunum: í fyrsta lagi börnin vantar mannleg samskipti til að komast yfir slæma reynslu sína. Og í öðru lagi vantar það búnað í skóla og skóladót til að skólalíf barna falli í eðlilegt horf.
Mörg samtök í Japan veita aðstoð til hamfarasvæðanna að sjálfsögðu, en þörfin er mikil. Eitt þeirra samtaka heita ,,Hjörtu úr gulli“ og þau hjálpa börnum einmitt í ofangreindum atriðum. Peningar sem unglingar í ÆSKÞ safna eiga að fara til Nobiru-grunnskólanns, sem er í miðju hamfarasvæðanna, gegnum hjálpasamtökin ,,Hjörtu úr gulli“.
Ég tók þátt í hluta landsmótsins ásamt nokkrum samlöndum mínum. Ég var hissa, satt að segja, í fræðslustund í byrjun um hvers vegna við hjálpum öðrum í neyð, þar sem allir hlustuðu á fyrirlesarann virkilega vel án þess að spjalla sín á milli eða vera með læti. Og síðan í frjálsri stund urðu þeir aftur kraftmiklir unglingar með brosandi andlit.
Það er hluti af því að vera almennileg manneskja að hugsa til fólks í neyð. Engu að síður gleymist þetta oft í hversdagslífi okkar, eða það er hunsað virkilega. Því finnst mér stórkostlegt að unglingar í ÆSKÞ sýndu frumkvæði í að taka söfnun til barna í Japan að sér og fræðast um málið. Ég vona að söfnunin verði tækifæri líka til að móta mannleg samskipti milli unglinga á Íslandi og japanskra barna og eftir mótið þróist þau þannig að japönsk börn komi í heimsókn til Íslands og öfugt.
Sem japanskur einstaklingur hérlendis langar mig að þakka ÆSKÞ og unglingunum fyrir hlýju hugmyndina þeirra og framtakið. Þeir verða leiðtogar íslensku þjóðarinnar í framtíðinni. Ég óska innilega þess að þeir verði leiðtogar með ,,hjörtu úr gulli“. Þá verður framtíð Ísland björt.