Það var margt og sérstakt sem átti sér stað og hafði áhrif á, að sr.
Einar Sigurðsson varð prestur í Heydölum og líktist fremur ævintýri en
áætlun.
Sr. Einar bjó með fjölskyldu sinni í prestsembætti við mjög þröngan kost
í Nesi í Aðaladal í Mývatnssveit. Til eru bréf frá sr. Guðbrandi,
biskupi á Hólum, til nágranna sr. Einars, þar sem biskup biður um að
horft sé til með sr. Einari og fjölskyldu og hjálpað með helstu
nauðsynjar svo þau kæmust af.
Oddur, sonur sr. Einars og Margrétar Helgadóttur, var kjörinn biskup í Skálholti árið 1588. Margrét, móðir hans, lést 44 ára að aldri, en þá var sr. Einar þrítugur. Þau höfðu eignast 8 börn og lifðu aðeins þrjú og þar á meðal Oddur. Síðar kvæntist sr. Einar Ólöfu þórarinsdóttur og eignuðust þau mörg börn og komust flest á fullorðinsár.
Sr. Oddur kom heim úr vígsluför sinni frá Kaupmannahöfn vorið 1589 og
fór þá um sumarið norður í Hóla til að hitta sr. Guðbrand, biskup. Frá
Hólum skreppur hann síðan í Nes í Mývatnssveit til að vitja fósturmóður
sinnar og systkina, en sr. Einar kom til móts við son sinn á Hólum og
reið svo með honum í Nes. Eftir viðdvöl í Nesi, fer ungi biskupinn
austur hingað á firðina í vísitasíuheimsókn og þaðan heim í Skálholt um
haustið.
Stöldrum hér við. Oddur siglir frá Kaupmannahöfn um vorið, kom í
Skálholt og fór síðan hringinn í kringum landið á sama sumrinu árið
1589, ekki akandi á bifreið, heldur ríðandi, engar brýr brúaðar og
margir farartálmar á leiðinni og útivistarbúnaður og matföng af öðrum
toga en við þekkjum í dag.
Á þessari ferð hefur biskupinn komið í Heydali og kynnst hér aðstæðum.
Líklega hefur þessi för biskupsins ráðið miklu um það að sr. Einar varð
hér prestur ári síðar.
Í heimsókn sr. Odds í Nesi varð að ráði, að faðir hans og fjölskylda
færi suður í Skálholt þá um haustið og dveldi þar um veturinn. Syninum
hefur líklega ekkert litist á aðstæður í Nesi, fátækt og umkomuleysi
föður síns.
Fjölskyldan taldi 11 börnin þeirra á ýmsum aldri og tvö barnabörn í
þeirri för suður yfir heiðar í Skálholt, var mikil hrakför og lá við að
fólkið yrði úti á leiðinni og taldi sr. Einar handleiðslu Guðs að þakka
að fólkið komst heilt í áfangastað í Skálholti og orti af því tilefni:
„Yngri börnin, öll þá sýkjast og móðirin veik, þá mæddist líka, en
óveður á þau dundu, seint á haustíma í háska staddir. – Á miðjum öræfum,
en þá reyndu dásemd eina drottins ljósa. Þar sem að allir villtir voru,
engill drottins, þá á veg leiddi. Komst svo síðan heim með heiðri í
Skálholti“.
Vorið 1590 var afráðið að sr. Einar yrði prestur í Hvammi í
Norðurárdal og yfirprófastur í Vestfirðingafjórðungi. Það þótti mikið
vildarbrauð og talsverð metorð fólgin í prófaststöðunni. Prestaskiptin í
Hvammi virðast ekki hafa verið einföld, jafnvel sár. Þar hafði þjónað
lengi sr. Salamón Guðmundsson, aldraður maður. Hann var látinn víkja
fyrir sr. Einari. Sagt er að sr. Salamón færi frá Hvammi nauðugur og
jafnvel grátandi.
En fljótt skipast veður í lofti. Fjölskyldan staldraði stutt við í
Hvammi, aðeins sumarlangt, tóku sig upp um haustið og fóru saman langa
leið úr Hvammi austur í Heydali, þangað sem sr. Oddur hafði nú skipað
föður sinn prest. Í Heydölum bjó sr. Einar svo fram á sinn hinsta dag
árið 1626 eða í 36 ár og orti flesta af sínum sálmum og ljóðum.
Af þessari frásögn má glöggt ráða, að koma sr. Einars í Heydali var ekki
samkvæmt fyrirfram gerðri langtímaáætlun, heldur hafi aðstæður og
jafnvel tilviljanir ráðið þar miklu umvafið í heilga köllun.
Svo vekur athygli í þessari atburðarás, að Austfirðir virðast ekki
álitnir afskekktir né einangraðir í þjóðlífinu og ekki hindrað sr. Einar
t.d. í að koma kveðskap sínum á framfæri.
Fólkið á þessum tíma var duglegt að ferðastt um landið. Sr. Einar skrapp t.d. með sonum sínum suður í Skálholt sumarið eftir að hann kom hingað fyrst og svo þaðan með Oddi, biskupi syni sínum, norður í Hóla þar sem Oddur kvæntist Helgu Jónsdóttur og eftir það fór „Einar, faðir hans, í Austfjörður að Eydölum heim í hvíldar sæti“, eins og skáldið sjálft komst að orði. Svo yrkir skáldið: „Enn var siðvenja Einars sona árlega, að ríða í Austfjörður til sumarvistar hjá sínum foreldrum, á haustin þá aftur heim til skóla.“