Fjölmargar kirkjur í Evrópu hafa styrkt Fairtrade - sanngjörn viðskipti - undanfarna áratugi. Stuðningurinn felst aðallega í því að bjóða upp á Fairtrade-merktar vörur í safnaðarstarfinu. En hver meðalstór söfnuður kaupir árlega töluvert magn af kaffi, tei, sykri, kexi, marmelaði o. s. frv.
Allar þessar vörur (ásamt mörgum öðrum) er hægt að kaupa núorðið í íslenskum verslunum. En þær eru merktar Fairtrade-merkinu, framleiddar og seldar eftir stöðlum sanngjarnra viðskipta.
Rökin á bak við sanngjörn viðskipti eru:
- Að framleiðendur og bændur fái sanngjörn laun fyrir vinnu sína og vörur.
- Að draga úr barnaþrælkun.
- Að lífræn ræktun nái frekari útbreiðslu.
- Að styrkja réttinn til félagafrelsis og stuðla að lýðræðisþróun.
- Að draga úr misrétti í heiminum.
Grafarvogskirkja er "Fairtrade kirkja". Sóknarnefnd hefur samþykkt að vera eingöngu með Fairtrade-merktar vörur í safnaðarstarfi sínu, þegar því verður við komið. Innan skamms á að stofna sérstakan "Fairtrade-hóp" innan safnaðarins. Þessi hópur verður eingöngu skipaður leikmönnum. Hann mun m.a. sjá um lítið söluborð í anddyri kirkjunnar, þar sem boðið verður upp á Fairtrade-merktar vörur. Þessi litla verslun verður opin eftir messur í kirkjunni. Með þessu móti viljum við gera Fairtrade sýnilegra meðal safnaðarfólks.
Þetta starf er svo sannarlega í anda Krists og stuðlar að betri heimi.