122. Nú ljómar merki, lífsins kross ♥
1 Nú ljómar merki, lífsins kross,
er leyndardóminn birtir oss:
Að þar sem lífið lífi hvarf
vér lífið tökum sjálft í arf.
2 Ó, mundu Drottins síðusár,
það sefar hjartans kvöl og fár.
Það blóð og vatn, sú lífsins lind,
hún leysir þig frá allri synd.
3 Því hafði Davíðs harpa spáð,
það hefur dýrðarfylling náð:
„Frá trénu drottnar Herrans hönd.“
Það hefur ræst um gjörvöll lönd.
4 Ó, heill þér kross, þú kristins þor,
þú kærsta, dýrsta gleðin vor.
Ó, sáðu' í hjörtun sannleikstrú
og syndaranum líkna þú.
5 Ó, heilög þrenning, hjálpa oss
að hylla Drottins lausnarkross.
Ó, lyft oss, kross, frá lágri jörð
í lofi, dýrð og þakkargjörð.
T Venantius Fortunatus um 600 – Sb. 1589 – Stefán frá Hvítadal, 1926 – Sb. 1945
Vexilla Regis prodeunt
L Gochsheim 1628 – Görlitz 1648 – Sb. 1871
Herr Jesu Christ, dich zu uns wend