466. Þitt lof, ó, Drottinn vor ♥
1 Þitt lof, ó, Drottinn vor, himnarnir hljóma,
þitt heilagt nafnið prísa ber.
Vor jörð skal söngvana enduróma:
Þú alheims stýrir, lof sé þér.
2 Þú reistir hvelfingar himinsins heima,
þín hönd gaf ljósið skærri sól.
Þú ekur sigrandi gegnum geima
á geislans braut að ysta pól.
T Christian F. Gellert, 1757 – Þorsteinn Gíslason – Vb. 1933
Die Himmel rühmen des Ewigen Ehre
L Johann J. Quantz, 1760 – Ssb. 1936
Die Himmel rühmen des Ewigen Ehre
Eldra númer 19
Eldra númer útskýring T+L