597. Lausnara þínum lærðu af ♥
1 Lausnara þínum lærðu af
lunderni þitt að stilla,
hógværðar dæmið gott hann gaf
nær gjöra menn þér til illa.
Blót og formæling varast vel,
á vald Guðs allar hefndir fel,
heift lát ei hug þinn villa.
2 Upplýstu hug og hjarta mitt,
Herra minn, Jesú sæti,
svo að ég dýrðar dæmið þitt
daglega stundað gæti.
Þeir sem óforþént angra mig
óska ég helst að betri sig
svo hjá þér miskunn mæti.
3 Eg má vel reikna auman mig
einn í flokk þeirra manna
sem í kvölinni þjáðu þig,
það voru gjöld syndanna.
En þú sem bættir brot mín hér,
bið þú nú líka fyrir mér
svo fái' eg frelsun sanna.
4 Fyrst þú baðst friðar fyrir þá
er forsmán þér sýndu mesta,
vissulega ég vita má,
viltu mér allt hið besta,
því ég er Guðs barn og bróðir þinn,
blessaði Jesú, Herra minn,
náð kann mig nú ei bresta.