615a. Gegnum hættur, gegnum neyð ♥
1 Gegnum hættur, gegnum neyð
göngum, Krists menn, vora leið.
Hvorki blöskri böl né kross,
brauðið lífsins styrkir oss.
2 Hræðumst engin sorgarsár,
sérhvert bráðum þornar tár.
Ótti hreki' oss ei af braut,
orkan vaxi' í hverri þraut.
3 Hugprúð gleðjist, hjörtu mædd,
herskrúðanum Drottins klædd.
Berjumst hart, ei hríð er löng,
hún mun enda' í gleðisöng.
4 Áfram því með dug og dáð,
Drottins studdir ást og náð.
Sé hann með oss ekkert er
óttalegt. Þá sigrum vér.
5 Gegnum hættur, gegnum neyð
göngum, Krists menn, vora leið.
Hvorki blöskri böl né kross,
brauðið lífsins styrkir oss.
T Henry K. White 1806 – Frances S. Maitland, 1827 – Stefán Thorarensen – Sb. 1886
Oft in sorrow, oft in woe
L Henry J. Gauntlett 1852 – JH 1885
UNIVERSITY COLLEGE / Oft in sorrow, oft in woe
Eldra númer 292
Eldra númer útskýring T+L