663. Þó missi ég heyrn og mál og róm ♥
Þó missi ég heyrn og mál og róm
og máttinn ég þverra finni,
þá sofna ég hinst við dauðadóm,
ó, Drottinn, gef sálu minni
að vakna við söngsins helga hljóm
í himneskri kirkju þinni.
T Ólína Andrésdóttir – Sb. 1945
L Christian Fugl um 1860
Jeg vet meg en søvn i Jesu navn