67a. Fögur er foldin ♥
1 Fögur er foldin,
heiður er Guðs himinn,
indæl pílagríms ævigöng.
Fram, fram um víða
veröld og gistum
í Paradís með sigursöng.
2 Kynslóðir koma,
kynslóðir fara
allar sömu ævigöng.
Gleymist þó aldrei
eilífa lagið
við pílagrímsins gleðisöng.
3 Fjárhirðum fluttu
fyrst þann söng Guðs englar,
unaðssöng er aldrei þver:
Friður á foldu,
fagna þú, maður,
frelsari heimsins fæddur er.
T Bernhard S. Ingemann 1850 – Matthías Jochumsson, 1917 – Sb. 1945
Dejlig er jorden
L Þjóðlag frá Slésíu – Breslau 1842 – JH 1885
Schönster Herr Jesu
Eldra númer 96
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Lúk. 2.8–14