Kyrie eleison. Guð faðir, miskunna þú oss.
Christe eleison. Kristur Guðs son, miskunna þú oss.
Kyrie eleison. Guð heilagur andi, miskunna þú oss.
Guð faðir í himnaríki. Miskunna þú oss.
Sonur Guðs og lausnari heimsins. Miskunna þú oss.
Drottinn Guð heilagur andi. Miskunna þú oss.
Frá öllum syndum, frelsa oss, Drottinn Guð.
Frá allri villu, frelsa oss, Drottinn Guð.
Frá öllu illu, frelsa oss, Drottinn Guð.
Frá harðæri og hamförum, frelsa oss, Drottinn Guð.
Frá slysum og áföllum, frelsa oss, Drottinn Guð.
Frá ófriði og styrjöldum, frelsa oss, Drottinn Guð.
Í velgengni og gleði, hjálpa oss, Drottinn Guð.
Í sorg og neyð, hjálpa oss, Drottinn Guð.
Fyrir þína bænabaráttu, hjálpa oss, Drottinn Guð.
Fyrir kross þinn og dauða, hjálpa oss, Drottinn Guð.
Fyrir upprisu þína og himnaför, hjálpa oss, Drottinn Guð.
Fyrir komu heilags anda, hjálpa oss, Drottinn Guð.
Á dauðastundu vorri, hjálpa oss, Drottinn Guð.
Í efsta dómi, hjálpa oss, Drottinn Guð.
Vér aumir syndarar biðjum þig. Bænheyr þú oss, Drottinn Guð.
Leiðbein þeim sem þjóna kirkju þinni. Bænheyr þú oss, Drottinn Guð.
Stöðva afvegaleiðendur og hindra alla villu. Bænheyr þú oss, Drottinn Guð.
Gef oss sigur yfir hinu illa. Bænheyr þú oss, Drottinn Guð.
Send trúa verkamenn í víngarð þinn. Bænheyr þú oss, Drottinn Guð.
Gef öllum anda þinn og kraft sem hlýða þinu orði. Bænheyr þú oss, Drottinn Guð.
Styrk þú hin óttaslegnu og uppgefnu. Bænheyr þú oss, Drottinn Guð.
Gef öllum þjóðum og þjóðarleiðtogum einingu og frið. Bænheyr þú oss, Drottinn Guð.
Veit stjórnvöldum landsins vernd þína og blessun. Bænheyr þú oss, Drottinn Guð.
Gef öllu fólki náð, frið og miskunn. Bænheyr þú oss, Drottinn Guð.
Hjálpa þeim sem stödd eru í nauðum og háska. Bænheyr þú oss, Drottinn Guð.
Haf umhyggju fyrir þeim sem eru hjálparlaus. Bænheyr þú oss, Drottinn Guð.
Annast þú og endurnær hin sjúku. Bænheyr þú oss, Drottinn Guð.
Vertu nálægur þeim sem standa við dauðans dyr. Bænheyr þú oss, Drottinn Guð.
Fyrirgef öllum óvinum okkar og lát þá snúast frá öllu illu. Bænheyr þú oss, Drottinn Guð.
Gef ávöxt á jörðinni og varðveit hana undir blessun þinni. Bænheyr þú oss, Drottinn Guð.
Ó, þú Guðs lamb sem burt tókst heimsins syndir, miskunna þú oss.
Ó, þú Guð lamb sem burt tókst heimsins syndir, bænheyr þú oss.
Ó, þú Guðs lamb sem burt tókst heimsins syndir, gef oss þinn frið.
Kyrie eleison. Guð faðir, miskunna þú oss.
Drottinn, gakk þú ei í réttlætisdóm við oss og gjald oss ekki eftir vorum syndum.
Ó, Drottinn, heyr þú vora bæn og lát ákall vort koma til þín.
Amen.