Hjálparstarf kirkjunnar
Vefsíða hjálparstafsinsHjálparstarfið vinnur óháð og sjálfstætt í þágu þeirra sem líða fátækt og óréttlæti. Við hjálpum til sjálfshjálpar og tölum máli fátækra. Markmið okkar er að draga fram kjör þeirra sem eiga sér ekki málsvara og ýta á aðgerðir sem breyta lífsmöguleikum þeirra. Við viljum horfa á getu og færni hvers og eins og opna möguleika til virkrar þátttöku í samfélaginu. Ráðgjöf og stuðningur er veittur án tillits til trúar, þjóðernis, litarháttar, kyns eða skoðana.
Hjálparstarf kirkjunnar er sjálfseignarstofnun skráð í þjóðskrá og fyrirtækjaskrá hjá Ríkisskattstjóra með rekstrarform félagasamtaka. Stjórn hennar er í höndum fulltrúaráðs. Fimm fulltrúar eru skipaðir af Kirkjuráði, lærðir eða leikir. Hvert prófastsdæmi landsins kýs einn fulltrúa í fulltrúaráð. Enginn má sitja í fulltrúaráði lengur en sex ár samfleytt. Fulltrúaráðið setur stjórninni og endurskoðendum starfsreglur.
Þriggja manna stjórn ber ábyrgð á daglegum rekstri stofnunarinnar. Hún heldur ekki færri en átta fundi árlega. Stjórnarmenn eru kosnir til eins árs í senn. Heimilt er að endurkjósa í stjórn þó ekki svo að samfelld seta stjórnamanna verði lengri en 6 ár. Tveir sitja í varastjórn. Alla jafna hittast bæði aðalmenn og varamenn á fundum stjórnar.
Heiti: Hjálparstarf kirkjunnar
Kt. 450670 0499
Heimilisfang: Háaleitisbraut 66, 103 Reykjavík
Sími: 528 4400
Fax: 528 4401
Þjóðkirkja Íslands stofnaði Hjálparstarf kirkjunnar árið 1970. Stofnunin hét þá Hjálparstofnun kirkjunnar en nafni hennar var síðar breytt enda þótti nýja nafnið meira lýsandi þar sem allar kirkjur í landinu standa að starfinu en ekki ein stofnun. Tildrögin að stofnuninni voru þau að kirkjan hafði árið áður staðið fyrir landssöfnun til styrktar sveltandi fólki í Biafra-héraði í Nígeríu. Bíafra - landssöfnun. Þá þótti tími til kominn að hefja skipulegt hjálparstarf á vegum kirkjunnar meðal bágstaddra þjóða, eins og tíðkast hafði lengi hjá nágrannaþjóðum okkar. Síðan hefur Hjálparstarf kirkjunnar tekið þátt í hjálparstarfi víða um heim, enda hefur efnahagsleg misskipting og þörfin fyrir öflugt hjálparstarf síst farið minnkandi á undanförnum árum.
Hjálparstarfið á fulltrúa í stjórn Almannaheilla, regnhlífarsamtaka félaga sem vinna í þágu almennings. Sjá nánari upplýsingar á heimasíðunni www.almannaheill.is