Endurmenntun og námskeið

Tónskólinn býður upp á endur- og símenntun á sviði kirkjutónlistar einkum í orgelleik, söng og ryþmískum hljómborðsleik. Auk þess eru reglulega haldin styttri námskeið sem auglýst eru hér undir þessum flipa. Skráning á endurmenntunarnámskeið fer fram í tölvupósti á tonskoli@tonskoli.is.


Orgelleikur

Tónskólinn býður upp á einkakennslu í orgelleik. Hægt er að sækja einkakennslu í orgelleik víða um land. Námið er einkum hugsað fyrir organista í starfi sem vilja bæta við sig en einnig þá sem langar að kynnast hljóðfærinu án skuldbindinga varðandi námskröfur.

Söngur

Tónskólinn býður upp á einkakennslu í söng. Hægt er að sækja einkakennslu í söng víða um land. Námið er einkum hugsað fyrir organista, kórstjóra, söngvara í kirkjukórum, presta og guðfræðinema sem vilja bæta við sig án skuldbindinga varðandi námskröfur.

Ryþmískur hljómborðsleikur

Tónskólinn býður upp á einkakennslu í ryþmískum hljómborðsleik. Námið er einkum hugsað fyrir organista, kórstjóra og aðra þá sem vilja bæta við sig án skuldbindinga varðandi námskröfur.

Verð á einkatímum

Hver einkatími er 40 mínútur.

3 tímar: kr. 24.000,-

5 tímar: kr. 37.500,-

14 tímar (heil önn): kr. 112.000,-

Ljómandi námskeið eru vettvangur fyrir innblástur, góðar hugmyndir og jafnvel hugljómanir fyrir fólk í starfi í kirkjum og aðra áhugasama um viðfangsefni námskeiðanna. Virk þátttaka og hugmyndaflæði einkenna Ljómandi námskeiðin og markmiðið að þátttakendur fari ljómandi af þeim!

Á haustönn verða tvö Ljómandi námskeið í boði:

Ljómandi léttu lögin við orgelið

Hvað?

Hvernig notum við orgelið til að spila ýmis dægurlög? Æfð verða lög sem algeng eru í athöfnum og unnið með þau í hóptímum.

Fyrir hvern?

Alla áhugasama organista.

Staðsetning

Bústaðakirkja

Hvenær og hverjir?

Föstudagarnir 11. október og 18. október kl. 16-18

Leiðbeinandi: Jónas Þórir Þórisson

Verð

Fullt verð 12.500 kr.

Ókeypis fyrir nemendur Tónskóla þjóðkirkjunnar

Skráning

Skráning er nauðsynleg, sendið póst á tonskoli@tonskoli.is

Ljómandi leikir og orgel í barnastarfi

Hvað?

Á námskeiðinu kennum við hvort öðru skemmtilega leiki sem hægt er að nota í barnastarfi og með barnakórum og fáum jafnframt góðar hugmyndir að því hvernig hægt er að nota orgelið í barnastarfinu.

Fyrir hvern?

Öll áhugasöm um skemmtilegt barnastarf

Staðsetning

Akureyrarkirkja

Hvenær og hverjir?

Föstudagurinn 26. október kl. 16-18

Leiðbeinendur: Guðný Einarsdóttir og Sigrún Magna Þórsteinsdóttir

Verð

Námskeiðið er ókeypis

Skráning

Ekki er þörf á skráningu

Tónskóli þjóðkirkjunnar býður upp á námskeið í raddbeitingu og framsögn í umsjá þeirra Davíðs Þórs Jónssonar, prests og leikara og Laufeyjar Helgu Geirsdóttur, söngkennara. Kennt verður í litlum hópi þar sem bæði verður farið yfir raddbeitingartækni, framsagnaræfingar og fleira gagnlegt sem tengist því að koma fram og nota röddina.

Námskeiðið fer fram í Háteigskirkju miðvikudagskvöldin 9., 16. og 23. október kl. 20-21:30. Bæði verður hópnum kennt öllum saman en einnig skipt í minni hópa.

Hámarksfjöldi þátttakenda er 10 manns svo það gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær.

Verð fyrir námskeiðið er 18.900 en öll námskeið á vegum Tónskólans eru styrkhæf frá stéttarfélögum.

Afsláttur er 50% fyrir starfandi presta og djákna Þjóðkirkjunnar sem og guðfræðinema við Háskóla Íslands.

Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á netfangið tonskoli@tonskoli.is