Fyrsti sunnudagur í aðventu 2018. Predikun í Stöðvarfjarðarkirkju og Heydalakirkju í Breiðdal
Fullveldi vonar
Til þín Drottinn, hnatta og heima, hljómar bæn um frið. Veittu hrjáðum,
hrelldum lýðnum, hjálp í nauðum, sekum grið. Þegar skjálfa skorðuð
fjöllin, skeika flest hin dýpstu ráð, lát oss veika fá að finna fasta
bjargið, þína náð.
Náð sé með yður og friður frá Guði föður og Drottni vorum Jesú Kristi, Amen.
Þessi ættjarðarsálmur eftir Pál Kolka, sem var læknir á Blöndósi, er
friðarbæn og lýsir vel andblænum í aðstæðum sem íslensk þjóð reyndi á
hátíð að fagna fullveldinu 1. desember árið 1918.
Mannskæð heimsstyrjöld hafði geisað og var nýlokið, drepsótt með spönsku
veikinni hafði herjað á þjóðina og margir látið lífið, eldgos í Kötlu
og þjóðin reyndi mestu kuldatíð í manna minnum með hafís bundnum við
landið og nefndur frostaveturinn mikli. Það var lítil björg í búi
íslenksra sveita fyrsta fullveldisveturinn.
En það var samt von í hjörtum þjóðar. Friðrik Friðriksson,
æskulýðsleiðtoginn mikli, lýsti fjölmennri samkomunni við
stjórnaráðshúsið í Reykjavík, þegar íslenski fáninn var fyrst dreginn að
hún, að þar hefði verið sorgblíð hátíðargleði. Hann sagði „að um leið
og fáninn var að komast á hún opnaðist skýjaþakið og bjart sólskin
streymdi niður yfir stöngina og ljómaði á fánann. Þá rann út fyrir
mörgum“.
Sorgblíð hátíðargleði. Við minntumst þess núna að síðan eru 100 ár. Saga
íslenskrar þjóðar er í blíðu og stríðu og engin velsæld sjálfgefin í
þeirri sögu allt fram á okkar dag. En þar er trúin kjölfesta, fasta
bjargið, styrkur í voninni.
Um það vitnar þjóðfáninn. Vonarmerkið í krossi eins og sorgblíð hátíðargleði.
Það er sagan, sem krossinn tjáir, um Jesú sem dæmdur var til að deyja
þar. Guð dæmdur til að deyja á krossi. En Guði var ekki útrýmt af mönnum
úr veröld fyrir það. Hann reis upp frá dauðum. Lífið lifir holskeflu
hamfaranna af. Af því að Guð er og verður. Þess vegna biður þjóðin: „Lát
oss veika fá að finna, fasta bjargið, þína náð“.
Það var vonin sem sameinaði þjóðina á fullveldisdaginn fyrir 100 árum.
Það er vonin sem reynst hefur einstaklingum best í aðstæðum sem ekki er
breytt með mannsins valdi. Það var líka vonin sem sameinaði þjóðina í
baráttuni fyrir fullveldinu.
Þar gegndi kirkjan stóru hlutverki. Hún var fjölmiðill þeirra tíma og sá
um að bera skilaboðin frá forystumönnunum baráttunnar til fólksins um
allt land, vera límið sem sameinaði, hreyfingin sem upplýsti, örvaði og
hvatti til dáða og samstöðu.
Ekki verður fullveldis minnst án þess að minnast og þakka fyrir Jón
Sigurðsson, baráttu hans og forystu, þrautsegju og þolgæði. Hvað sem á
gekk, þá var aldrei gefist upp, haldið áfram af festu og styrk. Enginn
íslenskur maður reis hærra í uppfræðslunni í barnaskólanum mínum forðum
daga. En fullveldið varð ekki til fyrir baráttu eins manns.
Þjóðin var á margan hátt vel í stakk búin í sjálfstæðisbaráttunni og til
að innleiða fullveldið. Þar réð mestu, að hún var læs og því menntuð og
hafði verið allt frá 18. öld, þrátt fyrir nístings sára fátækt af
efnislegum gæðum. Hér er siðbót Lúters og kirkjunni mikið að þakka.
Af því að siðbótin setti læsi almennings og menntun í forgang svo fólkið
gæti sjálft lesið Guðsorðabækurnar og ræktað beint samband við Guð. Svo
var móðurmálið sett í öndvegi og m.a. gert að skyldu að messan færi öll
fram á Íslensku en ekki latínu eins og tíðkast hafði í katólskunni.
Táknræn fyrir menningarbyltingu siðbótarinnar var prentsmiðjan og
bókaútgáfan, sem sr. Guðbrandur Þorláksson, biskup á Hólum, stóð þar
fyrir og er fyrsti vísir að bókadreifingu á meðal alþýðufólks í landinu.
Í kjölfarið á siðbótinni kom skólaskyldan sem var fyrst og lengi bundin
við fermingarfæðsluna og enginn mátti fermast nema vera læs.
Barnakennslan var í höndum prestanna í umsjá kirkjunnar, en alltaf í
nánu samráði við foreldra og heimilin. Því það var á þeirra ábyrgð að
börnin lærðu og var svo um aldir og hart gengið fram um að þjóðin hlýddi
skyldunni um uppfræðslu barnanna. Margar sögur eru til um það. Á
Íslandi var menntun alltaf álitin til mestu gæða, þjóðin bjó að merkri
bókmenntahefð og var stolt af og hlúð hafið verið að í katólskunni í
skjóli klaustranna, en fær svo þennan andans byr í siðbótinni á 16.og
17. öld.
Þar gegna Heydalir stóru hlutverki með sr. Einari Sigurðssyni, presti og
sálmaskáldi hér, sem orti drjúgt og meira en flestir aðrir í lok
sextándu aldar og á fyrri hluta þeirrar sautjándu og margir fengu að
njóta um land allt fyrir tilstilli prentsmiðjunnar á Hólum og bókaútgáfu
kirkjunnar. Þar var mikið að mörkum lagt til íslenskrar menningar í
landinu. Og við njótum þess enn og reynist drjúgt að ausa úr þeim andans
sjóði.
Núna eru allar íslenskar bækur prentaðar í útlöndum. Er það tímanna tákn
um að hugmynd okkar um fullveldið sé að breytast í ljósi hins nána
samfélags þjóðanna?
Inniviðir þjóðar í læsi og alþýðumenntun voru því mikil gæði og styrkur í
sjálfstæðisbaráttunni. Enn berast fréttir af þjóðum sem hlutu
sjálfstæði undan nýlendukúgun á síðustu öld, en mörgum hefur gengið illa
að innleiða sjálfstæðið með sæmilegu stjórnarfari og mannréttindum
fyrir almenning,- m.a. vegna ólæsis og takmarkaðrar alþýðumenntunar.
Auður þjóðar er ekki allur metinn til fjár. Langt frá því. Það
staðfestir sjálfstæðisbaráttan og fullveldið sem þjóðin ræktaði sér til
farsældar. Fullveldi og sjálfstæði er ekki gjöf af sjálfri sér, heldur
líf sem fólkið varðveitir, ræktar og þróar með orðum og verkum.
Það verður aldrei metið til fjár, heldur af þeim gildum sem þar gróa og
ráða för. Vonin í þjóðfánanum var kristin trú, fasta bjargið, náðin
Guðs. Fyrsta desember 1918 var dregin að hún þjóðfáni, sameingartáknið
af reynslunni í lífsbaráttunni um aldir. Þar ljómaði von í trú, eins og
sorgblíð hátíðargleði.
Þessi von var tendruð í barni sem fæddist í Betlehem og lagt var í jötu.
Enn er hátíð í nánd sem minnist þess og fagnar, meiri hátíð en nokkur
önnur sem haldin er í íslensku þjóðflífi. Samkvæmt gömlu hefðinni, þá
hefst undirbúningur hátíðar í dag á fyrsta sunnudegi í aðventu og markar
um leið tímamót og er fyrsti dagur í nýju kirkjuári. Þetta hefur alltaf
verið stór dagur, dagur vonar, þar sem eftirvænting blómgast í huga og
hjarta.
Táknrænt um það eru ljósin á aðventukransinum. Eitt fyrir hvern
sunnudag, og þeim fjölgar er nær dregur jólum. Kannski er nútíminn búinn
að missa sambandið við ljósið, af því að það virðist svo sjálfgefið með
rafmagninu. Það er eflaust fleira sem þjóðin hefur misst úr sambandi
sínu við lífið og nýtt tekið við.
Samt eru jólin og undirbúningur þeirra í hugum margra eins og afturhvarf
til þess gamla, að varðveita gamla siði og hefðir, hverfa aftur inn í
fortíðina, leyfa minningum að streyma fram, tendra ljós í sálinni, þakka
og lofa, göfga innri fegurð, sakna og syrgja, rækta sorgblíða
hátíðargleði.
Þó að hagsældin ljómi víða og kröfur um almenna velferð meiri en nokkurn
Íslending gat í huga komið fyrir 100 árum, þá er ríkidæmi manns og
þjóðar æðst í þeim kærleika sem við njótum í dagsins önn, að vera
umvafin í vináttu með ástvinum okkar, mega leggja gott að mörkum og
finna til sældar í sálinni.
Það er kærleikur sem ljómar af boðskap jólanna. Af þeim kærleika
undirbúum við hátíð á jólum. Þar er von sem segir: „Lát oss veika fá að
finna fasta bjargið, þína náð“ af því að Jesús Kristur sagði í
guðspjalli þessa dags: „Andi Drottins er yfir mér og sent mig til að
flytja fátækum gleðilegan boðskap, boða bandingum lausn og blindum sýn,
láta þjáða lausa og kunngjöra náðarár Drottins. Í dag hefur ræst þessi
ritning í áheyrn yðar“.
Það staðfestir íslensk hátíð á jólum, þar sem þjóðin sameinast um að fagna voninni sem trúin boðar. Í Jesú nafni. Amen.
Fullveldi vonar
Flokkar