31.
desember 2023 kl. 18
Aftansöngur
Sl.
90:1b-4, 12
Hebr.
13:5b-7
Lk.
12:35-40
Biðjum:
Ljósfaðir,
viltu leiða mig,
ljá
mér þinn sterka arm,
svala
þorsta' og sefa harm,
í
sannleika skapa undur ný,
beina
mér birtuna í. Amen. (sl. 728:4)
Náð
sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi. Amen.
Kenn
oss
Gamlársdagur
í dag, gamlárskvöld, síðasti dagur ársins.
Árið
2023 að renna sitt skeið. Hvað færði það þér?
Við
áraskil er eðlilegt að staldra við og horfa yfir liðið ár, meta stöðuna, hvar
erum við stödd á lífsins vegi, hvar ert þú stödd/staddur á þínum lífsins vegi?
Hvað var það sem árið 2023, færði þér?
Ljóssins
stundir, stundir blessunar, lífs, samfélags og þess sem gerir lífið dýrmætt. Hverjar
voru þínar ljóssins stundir á árinu sem er senn að líða? Hverjar voru síðan þungu
stundirnar, stundir erfiðleika, sorgar, missis, eða stundirnar þar sem skóinn
kreppti?
Hvar
var það sem þú fannst fyrir blessun og þakklæti? Gjarnan eru það þær stundir
sem veita okkur gjafir, sem ekki er hægt að pakka inn, gjafir þakklætis, gleði
og kærleika. Stundir missis og sorgar geta einnig veitt gjafir sem við öðlumst
ekki með öðrum hætti í lífinu en einmitt því að ganga í gegnum dimman dal,
sorgar og erfiðleika, en þar eru gjafirnar gjarnan, gjafir skilnings, auðmýktar
og mildis, þótt við auðvitað vildum helst vera án slíkra atburða í okkar lífi. En
er slíkir viðburðir henda okkur, þá leynist þar gjarnan lærdómur, dýpt og viska
sem maðurinn eignast ekki með öðrum hætti.
Viska
kynslóðanna mætir okkur í textum dagsins, við áraskil. Þar má finna áleitnar
spurningar um lífið og framgang þess, þar sem postulinn talar af heitri trú um
að Drottinn sé hans hjálpari og því muni hann ekki óttast, því hann er
sannfærður um að ekkert geti komið í veg fyrir að Guð sé okkur nærri. Þar má
finna hvatningu frá Jesú um að við höldum vöku okkar. Þar má finna ljóð er
miðlar ævarandi nærveru Guðs þar sem sálmaskáldið segir meðal annars og biður
til Guðs:
„Kenn
oss að telja daga vora, að vér megum öðlast viturt hjarta.“
Telja
daga vora – count our blessings
Sú
bæn fjallar m.a. um að Guð hjálpi okkur að finna og sjá allt hið dýrmæta og
djúpa sem lífið ber til okkar. Á ensku er talað um: „To learn to count your
blessings!“ Að læra að telja blessunarstundir lífsins, telja gæfusporin,
telja allt hið góða, læra að koma auga á það og leyfa því að gera hjarta okkar
ríkara, mildara, stærra.
Stundum
er talað um núvitund.
Stundum
er talað um að lifa einn dag í einu.
Ég
held að hvoru tveggja tengist þessari bæn: „Kenn oss að telja daga vora, að
vér megum öðlast viturt hjarta!“
Hvatning
til manneskjunnar um að koma auga á gjafir visku og dýptar, þær stundir sem
hafa breytt okkur og dýpkað líf okkar.
Hvaða
stundir í þínu lífi höfðu slík áhrif á liðnu ári?
Farsæld.
Heilsa. Vinátta. Samvera með fjölskyldu og vinum. Stundir þar sem tengsl voru
ræktuð, tengsl við Guð, tengsl við náunga okkar og samferðarfólk, tengsl við
okkur sjálf.
Þessi
þrenns konar tengsl eru gjarnan á dagskrá í kirkjunni, tengslin við okkur
sjálf, við náungann og við Guð. Þegar okkur ber gæfa til að rækta þetta þrennt
þá finnum við gjarnan djúpan tilgang, þakklæti og blessun.
Ljósið
loga
Jesús
hvetur viðmælendur sína, og þar með okkur, í guðspjalli gamlársdags, til að „vera
vel tygjuð og láta ljós okkar loga...“
Ljósið
er eitt af grunntáknum Biblíunnar, sem hægt er að finna stað í nær öllum bókum
Biblíunnar, allt frá sköpunarljóði fyrstu Mósebókar er Guð skapar heiminn og
greinir ljós frá myrkri, og til guðspjallanna og bréfa Nýja testamentisins. Ljósið
er ávallt tákn fyrir hið góða, fagra og sanna. Ljósið er sérstaklega tákn fyrir
Jesú sjálfan, en á einum stað segir hann: „Ég er ljós heimsins, sá sem
fylgir mér mun ekki ganga í myrkrinu heldur hafa ljós lífsins!“
Og
á öðrum stað segir hann síðan: „Þér eruð ljós heimsins, þannig lýsi ljós
yðar mönnunum svo þeir sjái góð verk yðar og vegsami föðurinn sem er á himnum!“
Einmitt
á þessum nótum talar Jesús í guðspjalli dagsins um ljósið og að við skulum láta
ljós okkar loga.
Er
við göngum í gegnum erfiðustu stundirnar, þar er viskan oft dýpst
Stundum
lærum við hvað mest á erfiðustu stundunum. Stundum veita erfiðustu stundirnar
okkur mestan ljóssins lærdóm. Stundum þroskast hjartað mest þegar þrautirnar
eru stórar og missirinn mikill.
Nú
við þessi áramót hugsa ég sterkt til Nonna vinar míns. Hann hefði orðið 49 ára
í september. Hann hefði orðið afi á þessu ári, en það er rúmt ár síðan
æskuvinur minn Nonni lést, hann var 48 ára, hann fékk því ekki að sjá fyrsta
barnabarnið. Hann átti þrjú yndisleg börn, sem hann var óendanlega stoltur af,
og stoltur hefði hann verið af litla barnabarninu, sem vex nú og dafnar í faðmi
sterkrar fjölskyldu.
Nonni
greindist með MS sjúkdóminn rétt kominn á þrítugs aldurinn og háði langa og harða
baráttu við þann illvígja sjúkdóm. Mjög misjafnt er hvernig sjúkdómurinn herjar
á einstaklingana, eins og þið kannski þekkið, hjá sumum er líkt og hann sé í
dvala og sjúklingurinn getur lifað nær óbreyttu lífi, þótt viðkomandi hafi
fengið MS greiningu. Hjá Nonna var það ekki svo, allt frá upphafi, skerti
sjúkdómurinn lífsgæði hans til muna og undanfarin ár var hann algerlega bundinn
hjólastól, búsettur á hjúkrunarheimili og þurfti umönnun um alla hluti.
Æðruleysið
var aðdáunarvert og styrkurinn, sem hann sýndi. Nonni sem hafði verið í
landsliðum Íslands í handbolta, búinn að mennta sig í rafvirkjun og
rafeindavirkjun, með meistararéttindi í húsasmíði, dugnaðurinn fram í
fingurgóma, var sviptur öllum þeim lífsgæðum og tækifærum, er hann veiktist.
Þegar
ég hugsa um þennan feril, þennan lífsferil míns kæra æskuvinar, finn ég og sé
að Nonni er einn af þeim einstaklingum sem hefur vitandi og óvitandi kennt mér
hvað mest í lífinu.
Í
sínum þröngu aðstæðum sýndi hann slíkan styrk og æðruleysi, sem ekki var hægt
annað en að dást að. Glíma hans, setti öll önnur heimsins vandamál í allt annað
samhengi. Erfiðleikar hverskonar og áskoranir sem maður sjálfur var að glíma
við á þeim tíma bliknuðu í samanburði við hans glímu, sem hann þó tókst á við
af eindæma styrk.
Samverustundirnar
með honum voru síðan svo merkingarþrungnar, eftir að hann veiktist. Vonin um að
hann myndi hljóta lækningu var rík og smituðust allir í kringum hann af þeirri
von, því hann ætlaði sér að ná sér. Nýju lyfin sem komu á markað fyrir nokkrum
árum, þau áttu til dæmis að gera kraftaverk. Þau dugðu fyrir marga, en því
miður ekki fyrir Nonna. Það voru aldrei góðar fréttir af heilsunni, alltaf
versnaði hann.
Það
var merkilegt að finna að með hverju áfallinu var sem allir í kring öðluðust
einhvern nýjan lærdóm. Nonni var kennarinn, vitandi og óvitandi. Og einnig
síðustu stundirnar, síðustu sólarhringar hans hér í heimi, er ég fékk að deila
með honum og fjölskyldunni hans í aðdraganda þess að hann lést á
hjúkrunarheimilinu, þar sem hann hafði dvalið og búið undanfarin ár, stundir
sem voru þrungnar merkingu, tengslum og því hve lífið er dýrmætt, ómetanlegt.
Hve hver einstaklingur hér í heimi er einstakur, ómetanlegur. Lærdómarnir voru
óteljandi.
Þvílíkur
missir fyrir okkur öll, þá sérstaklega börnin hans og foreldra, systur og
fjölskyldu hennar, alla sem hann þekktu. En um leið þvílík blessun að fá hafa
átt þennan góða vin, sem í sinni þröngu stöðu kenndi mér og öllum í kring
lærdóma um þakklæti, lærdóma um æðruleysi, lærdóma sem svo skrýtið er að hann
hafi kennt með lífshlaupi sínu.
Ljósið
hans Nonna logaði skært, þótt í þröngri stöðu væri.
Ljósið
hans Nonna logar enn, þótt hann sé horfinn héðan úr heimi.
Ljósið
hans Nonna logar, því þannig áhrif hafði hann á mig, í sinni þröngu stöðu.
Mildi
Guðs og kærleikur
Þrátt
fyrir brútal staðreyndir lífsins, um hræðilega sjúkdóma sem herja á okkar
nánustu vini og aðstandendur og kannski á okkur sjálf, stríð hvers konar í
heiminum, ógnir náttúrunnar, jarðhræðingar og eldgos, og hvað annað sem við
þurfum að glíma við, þá mun ekkert geta komið í veg fyrir að Guð elskar. Að það
er raunverulega til Guð sem vakir yfir öllum mönnum og veitir af náð sinna þeim
sem til hans leitar, blessun, ljós og líf.
Jafnvel
þegar við finnum okkur í þröngri stöðu og við teljum líf okkar takmarkað og
lítils virði, þá er það kannski einmitt þar sem við gefum hvað mest af okkur, lærdóma
til annarra sem við vitandi og óvitandi miðlum. Jafnvel þótt að okkur finnist
við ekki verð neins sérstaks, þá erum við öll, og allir menn, dýrmæt í augum Guðs,
og Guð ætlar sér mikla hluti með okkur hvert og eitt.
Ljóssins
ávextir eru stundum ósýnilegir. Hin góðu fræ sem við sáum með framgöngu okkar
og lífi, bera stundum ávöxt á annan máta en við gerum okkur í hugarlund. Líkt
og í tilfelli Nonna vinar míns, en við æskuvinir hans vorum sammála um að hann
hefði verið sá af okkur hópnum sem hefði haft hvað mest áhrif á líf okkar
allra. Áhrif til góðs, áhrif til aukins þakklætis, kærleika og mildis.
Áburður
og andleg rækt
Mildin
er einmitt ein af þeim dyggðum kirkjunnar sem ég tel að við nútímafólkið þurfum
að rækta. Við þurfum að rækta mildina í eigin garð og einnig annarra. Mildi
fyrir því sem við ætluðum að gera á liðnu ári, en tókst ekki. Mildi einnig til
framtíðar, okkar framtíðaráforma, til komandi árs, þar sem við skulum leggja
okkur fram í því að finna hina djúpu lærdóma og kærleika sem bíða okkar við
hvert fótmál, þar sem við öðlumst lærdóma, visku og blessun í ýmsu
fyrirsjáanlegu en einnig ýmsu sem án efa á eftir að koma okkur á óvart. Biðjum
Guð að kenna okkur að sjá þá lærdóma, svo þeir hreyfi við hjarta okkar, okkur
og samferðarfólki okkar til blessunar.
Megi
Guð efla okkur dug og þor, hugrekki og kjark, til að takast á við verkefni
lífsins og áskoranir.
Hagur
annarra
Í
raun og veru eru verkefni okkar hér í heimi einföld, en þau eru fólgin í því er
við mætum hvert öðru í gleði og alvöru og tökum þátt í lífinu hvert með öðru.
Þar miðlum við öll hvert öðru ljósi, við miðlum einnig bæði visku og blessun,
huggun og styrk, því við eigum að vera hvert öðru og samferðarfólki okkar til
gæfu. En einmitt þar er það Guðs kærleikur sem mætir okkur, þegar við vöknum á
hverjum morgni og við blasa nýir möguleikar og ný tækifæri til að verða öðrum
til gagns, þótt það sé jafnvel ýmislegt í okkar eigin lífi sem er erfitt og
sárt.
Megi
friður ríkja í hjarta þínu yfir árinu sem er að kveðja. Megi friður Guðs hvíla
yfir öllu sem það gaf og öllu sem það tók. Megir þú finna öllum atburðum ársins
sæti, þar sem friður Guðs er allt um kring.
Og
megi nýtt ár gefa okkur öllum tækifæri til að verða öðrum til gagns, og megi
það færa þér og þínum blessun og gæfu, líf og ljós.
Dýrð
sé Guði föður og syni og heilögum anda. Svo sem var í upphafi er og verður um
aldir alda. Amen.
Ég
vil nota tækifærið hér til að þakka mínu góða samstarfsfólki hér í
Grensáskirkju frábært samstarf á liðnu ári, samstarfsprestum, organista,
Kirkjukór Grensáskirkju, kirkjuverði, messuþjónum, sóknarnefnd, sjálfboðaliðum,
leiðtogum og öllum öðrum sem komu að þjónustu og starfi í Grensáskirkju. Þakka
ykkur öllum viðburðarríkt ár, ég hlakka til áframhaldandi samstarfs á komandi
ári.
Takið
postulegri kveðju: Náðin Drottins vors Jesú Krists, kærleiki Guðs og samfélag
heilags anda sé og veri með yður öllum. Amen.
Prédikun flutt í Grensáskirkju við aftansöng á gamlárskvöld 2023