Biðjum:
Vort
hjarta sé musteri heilagt það
er
Herrann í bústað eigi
og
hvenær sem leitum honum að
þar
hann ætíð finna megi
svo
viskan og náð þar verði sáð
er
vaxi með hverjum degi. Amen. (Sl. 81:3)
Náð
sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi. Amen.
Gleðilegt
nýtt ár, kæri söfnuður, kæru vinir. Gleðilegt nýtt ár.
Páskarnir
og jólin
Við
sjáum að jólatextarnir margir eru frásagnir um Jesú á páskum líkt og
guðspjallatexti dagsins. Páskar og jól halda saman því þessar stórhátíðir tvær
miðla báðar hógværð, mildi og auðmýkt.
Jesús
fæddist inn í þennan heim í umhverfi fátæktar og skorts, en ekki allsnægtar og
ríkidæmis. Hann gekk veg fórnfýsis og gæsku. Hann opinberaði okkur mikil
sannindi um eðli heimsins þar sem þeir síðustu verða fyrsti og hinir fyrstu
síðastir. Um að leiðin að upprisu liggur í gegnum það að játa sig sigraðan,
líkt og hann gerði á Golgata á páskum er hann var saklaus, drepinn, en reis
síðan til lífs á páskadagsmorgni. Jólin og páskarnir halda því saman og miðla
lífi, miðla lífsins sannindum.
Þessar
frásagnir miðla ekki aðeins sögulegum sannindum um ævisögu Jesú. Þær miðla
mikilvægum sannindum um eðli heimsins og hvernig lífið virkar í raun.
Hvernig
lífið virkar í raun opinberast svo í framgöngu okkar í lífinu. Eitt
mikilvægasta verkefni okkar hvers og eins er að leggja okkur fram um að setja
okkur í annarra spor. Hlusta hvert á annað, taka tillit, bera virðingu hvert
fyrir öðru, biðja fyrir hvert öðru.
Setja
sig í annarra spor
Því
í raun og veru eru verkefni okkar hér í heimi einföld, en þau eru fólgin í því
er við mætum hvert öðru í gleði og alvöru og tökum þátt í lífinu hvert með
öðru. Þar miðlum við öll bæði visku og blessun, huggun og styrk, því einnig við
eigum að vera hvert öðru og samferðarfólki okkar til gæfu. En einmitt þar er
það Guðs kærleikur sem mætir okkur, þegar við vöknum á hverjum morgni og við
blasa nýir möguleikar og ný tækifæri til að verða öðrum til gagns, þótt það sé
jafnvel ýmislegt í okkar eigin lífi sem er erfitt og sárt.
Að
vera öðrum blessun er verkefni hvers manns. Hvaðan er þetta hugtak komið,
blessun?
Blessunarorðin
Blessunarorðin
eru Mósebókum. Þar segir frá því er Drottinn talaði til Móse og sagði honum að
miðla eftirfarandi orðum til Arons og sona hans. Aron var fyrsti presturinn í
Gamla testamentinu. Aron og synir hans voru fyrstu prestarnir. Aronsættin var
því prestaættin.
En
blessunarorðin hljóma svo:
Drottinn
blessi þig og varðveiti þig,
Drottinn láti sína ásjónu lýsa yfir þig og sé þér náðugur,
Drottinn upplyfti sínu augliti yfir þig og gefi þér frið.
Þannig skuluð þið leggja nafn mitt yfir Ísraelsmenn og ég mun blessa þá.
„...láti
sína ásjónu lýsa yfir þig og sé þér náðugur...“
Hvað
þýðir þetta eiginlega?
Ég
heyrði eftirfarandi svar við þeirri spurningu.
Ásjónan
sem lýsir yfir
Í
samhengi frásögunnar um synina tvo og föðurinn. Synirnir tveir, þar sem annar sonurinn
krafði föður sinn um arfinn, þrátt fyrir að faðirinn væri enn á lífi. Fékk
hann, fór út í heim og sólundaði fénu og fann sjálfan sig snauðann og hrakinn
að éta svínafóður í fjarlægu landi. Þá ákvað hann að fara heim að nýju.
Þið
þekkið þessa sögu, er það ekki?
Helgisagan
segir að þegar sonurinn nálgaðist húsið og æskuheimili sitt og faðirinn sá hann
koma, varð faðirinn svo glaður að hann hljóp á móti skömmustulegum syni sínum.
Þegar hann sá soninn og kom að honum, lýsti ásjóna föðurins af svo mikilli
gleði og væntumþykju yfir því að sonurinn væri á lífi, að sonurinn væri kominn
heim, að það birti yfir öllu.
Blessunarorðin
eru bæn þess efnis að Guð horfi á þann máta við okkur hverju og einu. Staðhæfing
þess að einmitt þannig horfi Guð til okkar hvers og eins, með gleði og elsku.
Ættbálkurinn
- Að vera öðrum blessun
Biblían
er uppfull af svona frásögum, helgisögum, dæmisögum. Biblían er einnig uppfull
af frásögum af ólíkum þjóðum sem herja hver á aðra. Þjóðirnar voru kannski ekki
þjóðir í skilningi nútímans, þetta voru frekar ættbálkar sem stóðu vörð um ætt
sína, framgang og gengi.
Allir
tilheyrðu ákveðinni ætt og samhengi. Einstaklingur og einstaklingshyggja var
ekki til í sama mæli og nútíminn þekkir.
Ef
þú tilheyrðir ekki einhverjum ættbálk, á þessum tíma, þá gastu varla verið til.
Ættbálkurinn var öryggi þitt og við ættbálkinn lofaðir þú tryggð. Fyrir
ættbálkinn barðist þú og þar lá allur þinn trúnaður. Því allir áttu lífsafkomu
sína undir því að ættbálkurinn héldist saman og héldi velli. Þú lagðir líf þitt
að veði fyrir ættbálkinn.
Aðrir
fyrir utan þinn ættbálk voru því andstæðingar þínir. Aðrir voru ógn.
Svona
var staðan í mörg þúsund ár.
En
svo varð róttæk breyting.
Ættbálkur
einn fékk nýtt hlutverk. Hvaða hlutverk fékk ættbálkurinn sem Drottinn kallaði
og blessaði?
Vitið
þið það?
Sá
ættbálkur fékk það hlutverk að vera öðrum blessun. Vera öðrum, þ.e.a.s. þeim
sem fyrir utan ættbálkinn stóðu, til gæfu.
Það
voru allir þeir sem fyrir utan stóðu, sem áður og kannski enn, voru ógn og þú
hafðir kannski staðið í deilum við, kannski stríði. Nú áttir þú að hafa
frumkvæði að því að vera öðrum, þeim öllum, til blessunar, reynast þeim vel.
Róttæk
hugmynd
Þetta
var gríðarlega róttæk hugmynd. Þetta var svo róttæk hugmynd að hún breytti
heiminum. Við sjáum það síðan á síðum Biblíunnar hvernig ættbálknum, þjóðinni,
gengur í þessu nýja hlutverki sínu. Þeim gengur þetta vitanlega misvel.
Þetta
sama hlutverk hafa öll stærstu trúarbrögð heimsins í dag. Þ.e.a.s. að vera
öðrum blessun. Múslimar, gyðingar og kristnir eiga Abraham, Ísak og Jakob að
forfeðrum. Þessir sameiginlegu forfeður trúarbragðanna stóru, fengu einmitt
þetta sama hlutverk. Að vera öðrum blessun.
Hvernig gengur okkur þetta verkefni í dag? Vitanlega misvel. En þetta er enn þá köllun hins kristna manns, þetta er einnig verkefni gyðingsins og múslimans.
Utan
okkar hóps
Við
upphaf nýs árs er það okkar verkefni að stilla þessa strengi upp á nýtt. Setja
okkur í annarra spor og sjá hvernig við getum bætt heiminn enn frekar.
Slíkt
hefjum við í eigin ranni. Slíkt hefjum við á okkur sjálfum. Heimurinn breytist
ekki til góðs ef við ætlumst aðeins til þess að aðrir breyti sér, aðrir taki
tillit, aðrir setji sig í annarra spor. Það er okkar verkefni, það er mitt
verkefni, það er verkefni okkar hvers og eins, að vera öðrum blessun.
Ekki
ein
Svo
er það hin undarlega staðreynt að í þessu verkefni erum við ekki ein. Guð er
til. Og Guð er ekki bara til, heldur lætur sig varða um sérhvern mann. Og lætur
sig ekki aðeins varða, heldur gengur með okkur lífsveginn, líkt og herra
Sigurbjörn heitinn Einarsson biskup orðaði svo vel í einum af nýju sálmum
nýrrar sálmabókar, er hann segir á svo myndrænan máta:
Mig
dreymdi mikinn draum: Ég stóð
með
Drottni háum tindi á
og
horfði yfir lífs míns leið,
hann
lét mig hvert mitt fótspor sjá.
Þau
blöstu við. Þá brosti hann.
Mitt
barn, hann mælti, sérðu þar,
ég
gekk með þér og gætti þín,
í
gleði og sorg ég hjá þér var.
Þá
sá ég fótspor frelsarans
svo
fast við mín á langri braut.
Nú
gat ég séð hvað var mín vörn
í
voða, freistni, raun og þraut.
En
annað sá ég síðan brátt:
Á
sumum stöðum blasti við
að
sporin voru aðeins ein.
Gekk
enginn þá við mína hlið?
Hann
las minn hug. Hann leit til mín
og
lét mig horfa í augu sér:
Þá
varstu sjúkur, blessað barn,
þá
bar ég þig á herðum mér.
Stundum
er það einmitt þannig að þegar við horfum til baka og sjáum tímabilin, árin að
baki, og stundirnar þar sem skóinn hefur kreppt í lífinu, út af sorg eða öðrum
áföllum, þá skiljum við kannski ekki endilega hvernig við komumst áfram
lífsveginn. Þá er það kannski einhver stærri kraftur, sem var þar með okkur í
verki.
Megi
sá kærleikans kraftur fylgja þér á nýju ári. Megi sá kærleikans kraftur efla
þig og styrkja, auka þér þor og hugrekki, veita þér allt sem þú þarfnast til að
lifa lífinu í fullri gnægð nú frá nýársdegi og árið á enda.
Nýtt
ár 2023
Matthías
Jochumsson segir í sálmi 74 í sálmbókinni:
Í
hendi Guðs er hver ein tíð,
í
hendi Guðs er allt vort stríð,
hið
minnsta happ, hið mesta fár,
hið
mikla djúp, hið litla tár.
Dýrð sé Guði, föður og syni og heilögum anda. Svo sem var í upphafi er og verður um aldir alda. Amen.
Ég vil nota tækifærið hér til að þakka félögum í Kammerkór Bústaðakirkju, kantór, messuþjónum, sóknarnefnd og samstarfsfólki ánægjulegt samstarf á árinu sem liðið er.
Einnig vil ég benda á nýtt og efnismikið blað Hins íslenska biblíufélags sem nálgast má hér frammi að athöfn lokinni, ásamt lestrarskrá.
Takið postullegri kveðju: Náðin Drottins vors Jesú Krists, kærleiki Guðs og samfélag heilags anda sé og veri með yður öllum. Amen.
Prédikun flutt í hátíðarguðsþjónustu á nýársdag 2023 í Bústaðakirkju.