2.sd.e.þrett. - B röð 2023 – Predikun á Hlíf
Niður úr trénu
Lexía: 1Sam 3.1-10
Sveinninn Samúel gegndi nú þjónustu við Drottin undir handleiðslu Elí. Á
þessum tíma var orð Drottins sjaldgæft og sýnir fátíðar.
Einhverju sinni bar svo við að Elí lá og svaf þar sem hann var vanur.
Hann var hættur að sjá því að augu hans höfðu daprast. Lampi Guðs hafði enn
ekki slokknað og Samúel svaf í musteri Drottins þar sem örk Guðs stóð.
Þá kallaði Drottinn til Samúels og hann svaraði: „Já, hér er ég.“ Hann
hljóp síðan til Elí og sagði: „Hér er ég, þú kallaðir á mig.“ En hann svaraði:
„Ég kallaði ekki, farðu aftur að sofa,“ og Samúel fór að sofa. Drottinn kallaði
þá aftur: „Samúel!“ og Samúel reis upp, gekk til Elí og sagði: „Hér er ég, þú
kallaðir á mig.“ En hann svaraði: „Ég kallaði ekki, sonur minn, farðu aftur að
sofa.“
En Samúel þekkti Drottin ekki enn þá og orð Drottins hafði ekki enn
opinberast honum. Þá kallaði Drottinn til Samúels í þriðja sinn og hann reis
upp, gekk til Elí og sagði: „Hér er ég, þú kallaðir á mig.“ Nú skildi Elí að
það var Drottinn sem var að kalla til drengsins. Elí sagði því við Samúel:
„Farðu að sofa. En kalli hann aftur til þín skaltu svara: Tala þú, Drottinn,
því að þjónn þinn heyrir.“ Samúel fór og lagðist fyrir á sínum stað.
Þá kom Drottinn, nam staðar andspænis honum og hrópaði eins og í fyrri
skiptin: „Samúel, Samúel!“ Samúel svaraði: „Tala þú, Drottinn, því að þjónn
þinn heyrir.“
Pistill: Róm 1.16-17
Ég fyrirverð mig ekki fyrir fagnaðarerindið. Það er kraftur Guðs sem
frelsar hvern þann mann sem trúir, Gyðinginn fyrst og aðra síðan. Réttlæti Guðs
opinberast í því fyrir trú til trúar eins og ritað er: Hinn réttláti mun lifa
fyrir trú.
Guðspjall: Lúk 19.1-10
Jesús kom til Jeríkó og gekk gegnum borgina. En þar var maður er Sakkeus
hét. Hann var yfirtollheimtumaður og auðugur. Langaði hann að sjá hver Jesús
væri en tókst það ekki fyrir mannfjöldanum því að hann var lítill vexti. Hann
hljóp þá á undan og klifraði upp í mórberjatré til að sjá Jesú, en leið hans lá
þar hjá. Og er Jesús kom þar að leit hann upp og sagði við hann: „Sakkeus, flýt þér ofan, í dag ber mér að vera í húsi
þínu.“
Hann flýtti sér ofan og tók á móti honum glaður. Þeir er sáu þetta létu
allir illa við og sögðu: „Hann þiggur boð hjá bersyndugum manni.“
En Sakkeus sneri sér til Drottins og sagði við hann: „Drottinn, helming
eigna minna gef ég fátækum og hafi ég haft nokkuð af nokkrum gef ég honum
ferfalt aftur.“
Jesús sagði þá við hann: „Í dag hefur hjálpræði hlotnast húsi þessu enda ert þú líka niðji Abrahams. Því að Mannssonurinn er kominn að leita að hinu týnda og frelsa það.“
I.
Náð
sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi. Amen.
Sakkeus, flýt þér ofan, í dag ber mér að vera í húsi þínu.
Tollheimtumenn
voru víst fremur illa þokkaðir á dögum Jesú.
Fólk leit þá hornauga af því þeir innheimtu skatta fyrir Rómarveldi, sem
hafði hernumið land Gyðinganna, Ísrael.
Svo fór það orð einnig af tollheimtumönnum að þeir væru ranglátir því
þeir innheimtu hærri tolla en þeim bæri, til að stinga einhverju í eigin vasa. Sakkeus virðist hafa verið þannig maður. Hann var aurasál. En Jesús sá eitthvað við manninn og kallaði
hann niður úr trénu. Og eftir samskipti
þeirra á milli þá tók Sakkeus sinnaskiptum og ákvað að gefa fátækum helming
eigna sinna. Kynni Sakkeusar af Jesú og
boðskap hans umbrreyttu lífssýn hans svo mjög að hann gaf helming auðæva sinna.
Fólk,
sem kemst aftur til trúar síðar á ævinni, fólk, sem snýr aftur til sinnar gömlu
barnatrúar, upplyfir oft gjörbyltingu á lífi sínu. Það fær nýja sýn á tilveruna. Kristin trú og íhugun getur haft slík róttæk
áhrif á fólk. Og er þá talað um að fólk
taki afturhvarfi eða taki trú á ný.
Sagan
af Sakkesusi er svolítið merkileg. Hún dregur
upp mynd af manni, sem klifrar upp í tré til að sjá Jesú. Það er greinilegt að Sakkeus er forvitin um
Jesú. Kannski fann hann fyrir einhverjum
tómleika í tilveru sinni. Kannski fannst
honum vanta eitthvað í líf sitt þrátt fyrir öll auðævin.
Annað,
sem er athyglisvert við söguna er að Sakkeus er illa þokkaður. Í augum almennings er hann bersyndugur. Hann er einangraður maður, sem fáir vilja
heimsækja eða hafa nokkuð saman við að sælda.
Þess vegna verður mannfjöldinn svo undrandi á því að Jesús skuli
virkilega vilja heimsækja þennan vesæla mann og aurapúka. En Guð elskar allar manneskjur. Það sýnir þessi saga.
Greinilegt
er að sinnaskipti Sakkeusar hafa þau áhrif að hann vill hjálpa samborgurum
sínum, aðstoða þá, sem minna mega mín. Eftir
samtal sitt við Jesú þá snýr Sakkeus aftur út í samfélagið gjörbreyttur
maður. Hann vill nú eiga frið við aðra menn,
vera einn af fólkinu í Jeríkó, eiga samfélag við aðra.
II.
Það
eru meira en þúsund ár síðan að Þorgeir Ljósvetningagoð skreið undir feldinn,
hugsaði málið og kvað svo upp úr að á Íslandi skyldu vera ein lög og einn siður
svo að friður ríkti í samfélaginu. Þessi
niðurstaða Þorgeirs er svolítið merkileg því hann var heiðinn goði. Hún er þó ekki einsdæmi.
Hjá
munkinum Bede, sem skrifaði um kristnitöku Bretlands árið 731, er að finna
athyglisverða frásögn. Hann ritaði þar
um atburði, sem urðu einni öld áður þegar Edwin konungur í Northumbria kallaði
saman ráðgjafa sína til að svara því hvort þeir ættu að meðtaka Krist sem sinn
guð og frelsara. Og þá gerðist það
merkilega að foringi hinna heiðnu hofgoða mælti með siðaskiptum líkt og Þorgeir
gerði síðar á Alþingi. Rök hins
keltneska goða fyrir siðaskiptum voru athyglisverð. Hann hvatti samlanda sína til að taka við
kristni því hún veitti upplýsingar um það, sem á undan færi og einnig það, sem
mundi koma á eftir. Í mjög ljóðrænum
texta Bedes líkir goðinn lífi mannsins við það þegar setið er í stórum sal í
veislu um vetur og fugl flýgur inn í salnum og svo út hinum megin. Fuglinn kemur inn úr myrkinu og kuldanum og
flýgur augnabliki síðar út í myrkrið aftur.
Þannig sé mannlífið eins og andrá eða blik. Og ef þessi nýi siður, kristni, geti veitt
mönnum svör við því, sem gerist á undan og eftir, þá sé rétt að hyggja betur að
hinum nýja sið, sagði goðinn.
Í
raun koma fram í máli goðans hinar mjög svo tilvistarlegu spurningar um hvaðan
kem ég, hver er ég og hvert fer ég að loknu þessu lífi. Og keltneski goðinn taldi að kristnin hefði
svör við þessu.
Ég held
að ástæða þess að kristnitakan á Íslandi hafi gengið svona greiðlega fyrir sig
sé sú að Íslendingar hafi viljað tengjast umheiminum. Þeir hafi viljað eiga samleið með Noregi og
öðrum kristnum þjóðum Evrópu. Í stað
þess að velja staðbundin átrúnað sinna ættmenna þá hafi Íslendingar ákveðið að taka
hinu nýju trú og verða hluti af heild.
Þetta er reyndar oft sagt um fermingarbörn; að þau fylgi bara fjöldanum.
En
stundum getur verið gott að vera í mannfjöldanum. Jesús var í mannfjöldanum í Jeríkó og hann
kallaði á Sakkeus: Sakkeus, flýt þér ofan, í dag ber
mér að vera í húsi þínu.
III.
Sakkeus var vinafár og
einmana. Og hann húkti uppi í tré. Hann var ekki velkominn inn í
mannfjöldann. Enginn vék úr vegi fyrir
honum eða vildi færa sig til hliðar svo hann, litli maðurinn gæti séð Jesú.
Ætli
það séu einhverjir Sakkeusar, sem húki einmana uppi í tré í nútímanum? Þegar maður klifrar upp í tré þá má oft sjá
víða yfir hús og umhverfi. Við nútíma Íslendingar erum svo heppin að
eiga flest slíkt tré, sem veitir okkur yfirsýn um allan heim. Ég held á einu slíku tré. Þetta er snjallsíminn minn. Með honum get ég talað og horft framan í
dóttur mína í Hollandi. Ég get fylgst
með því, sem er að gerast í Indlandi. Og
líka séð hvernig færðin er á veginum á Steingrímsfjarðarheiði. Ég get meira að segja sett bílinn minn í gang
og hitað hann upp meðan ég drekk morgunkaffið.
Og ég er viss um að innan skamms muni koma app í símann þannig að ég
geti ýtt á það og þá fari kaffikannan í eldhúsinu af stað. Með svona tré í hendinni þá getur maður
allt. Einn sími getur veitt manni meiri
tónlist, meiri myndlist, meiri afþreyingu en hinn auðugi Sakkeus gat keypt
fyrir alla sína peninga. Meira að segja Loðvík
14., Le Roi Soleil, Sólkonungurinn sjálfur átti ekki svona galdratæki
eins og ég hef í höndunum.
En margur verður af aurum api.
Ég
ætla að segja ykkur brandara: Tveir mávar horðu á fuglahræðu. Þá sagði annar þeirra: Hvernig veistu að þetta er fuglahræða en ekki
maður? Þá sagði hinn mávurinn: Það er augljóst, hann heldur ekki á síma!
Alltaf
þegar ég sé fólk í dag þá heldur það á síma.
Á veitingastaðnum situr par og gónir á símana sína í stað þess að tala
saman. Heima liggur unglingurinn uppi í
rúmi og strýkur símanum sínum. Síminn er
mórberjatréð, sem Sakkeus klifraði upp í.
III.
Hvað
er kristin trú og til hvers leiðir hún?
Trúin vekur með okkur vonir og hún styrkir siðferði okkar og eykur
kærleika okkar til systra okkar og bræða, til samferðafólksins. Eitt megineinkenni kristinnar trúar er að hún
sameinar fólk. Sá eða sú, sem frelsast
og tekur kristna trú, hverfur ekki inn í sjálfa sig heldur frelsast á vit
annarra. Kristin trú er samfélag, hún er
samfélag okkar við Guð og við hvert annað.
Sjáið
hvað gerðist með hann Sakkeus þegar hann kom niður úr trénu og hafði verið með
Jesú. Hann vildi strax sættast við samfeðamenn
sína og rétta náunganum hjálparhönd.
Í þriðju
grein trúarjátningarinnar þá er fjallað um þetta. Ég trúi á
heilagan anda, heilaga almenna kirkju, samfélag heilagra, fyrirgefningu syndanna,
upprisu mannsins og eilíft líf. Kristin
trú er samfélagsafl. Hún breytir þeim
samfélögum, þar sem hún festir rætur, af því að boðskapur hennar breytir þeim,
sem honum kynnast.
Við
trúum því í alvöru að það að koma saman til guðsþjónustu og syngja saman gömlu
góðu sálmana, biðja saman og hlýða á guðs orð muni á einhvern hátt gera okkur að
heilsteyptari og betri manneskjum. Við
trúum á samfélag heilagra, samfélag okkar við Guð og aðrar manneskjur.
Spurningin
er hvort nútíma manneskjan vilji koma niður úr sínu tré og verða hluti af hinni
heilögu almennu kirkju.
Kirkjan,
líkt og Jesús, lítur upp og kallar upp í tréð:
Komdu!
Hið íslenska Biblíufélag hefur látið útbúa sérstakt app, sem
hægt er að setja í símann sinn og þannig hefur fólk aðgang að Biblíunni og
getur lesið eða hlustað á hana. Stundum gerist
það að kirkjan fer upp í tréð til að ná í fólkið.
Það
er svo mikilvægt í nútímanum að ná til fólks.
Kirkjan hefur góðan boðskap fram að færa. Vonandi blómgast kristin kirkja og kristin menning
á komandi tíð. Ég trúi því og ég vona
það því ég held að kirkjan sé í almáttugri hendi Guðs. Við njótum öll handleiðslu heilags anda.
Dýrð sé Guði, föður, syni og heilögum anda. Svo sem var í upphafi, er og verður um aldir alda. Amen.
Auglýsa:
Kaffiveitingar á eftir. Við röðum upp borðum og hjálpumst að.
Postulleg
blessun:
Friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, varðveiti hjörtu yðar og hugsanir í Kristi Jesú, Drottni vorum og frelsara. Amen.
Bænir
Drottinn
Guð, blessaðu okkur með þínu eilífa ljósi.
Ljós föðursins gefi okkur visku.
Ljós Krists miskunni okkur. Ljós
heilags anda ummyndi okkur í ljós. Kæri
Guð gefðu það að við verðum öðrum manneskjum þitt ljós hér í heimi. Fyrir Jesú Krist, Drottin vorn.
Lífsins
faðir, eins og englarnir þjóna þér á himni, lát kirkju þína þjóna þér á
jörðu. Við minnumst sérstaklega íslensku
kirkjunnar, blessa alla þjónustu á hennar vettvangi, ver með biskupum hennar,
prestum og öðru starfsfólki. Fyrir Jesú
Krist, Drottin vorn.
Eilífi
Guð, þú ert hinn sami þótt árin líði, ver hjá þeim, sem ellin bugar. Þótt líkamar þeirra hrörni lát þá anda þeirra
vera styrka í þér, að þau megni að bera með þolgæði þreytu og sorg, söknuð og
vonbirðgi og að síðustu mæta efstu stundu æðrulaus í friði. Fyrir Jesú Krist, Drottin vorn.
Almáttugi
Guð, við biðjum fyrir Íslandi og íslensku þjóðinni. Hjálpaðu okkur til að byggja hér upp réttlátt
samfélag þar sem staðinn er vörður um hag lítilmagnans, þar sem fólk elskar
náunga sinn og talar fallega til hans, þar sem umhyggja og heiðarleiki ríkja í
samskiptum fólk. Bænheyr það, fyrir Jesú
Krist, Drottin vorn.