237. Oss héðan klukkur kalla ♥
Oss héðan klukkur kalla,
svo kallar Guð oss alla
til sín úr heimi hér,
þá söfnuð hans vér sjáum
og saman vera fáum
í húsi því sem eilíft er.
T Valdimar Briem – Sb. 1886
L Heinrich Isaac um 1495 – Nürnberg 1539 – PG 1861
Innsbruck, ich muss dich lassen / Nun ruhen alle Wälder